top of page

GRILLAÐAR NEKTARÍNUR

  • Feb 1
  • 1 min read

Grillaðar nektarínur með haframulningi, Dumle karamellusósu og ís er afskaplega ljúffengur og sumarlegur eftirréttur. Tilvalið að skella í þetta þegar ferskar og gómsætar nektarínur eru til í verslunum á vorin og sumrin. Það er eitthvað svo gott að grilla ávexti á sumrin og þá sérstaklega ferskjur. Mér finnst sniðugt að útbúa haframulninginn með smá fyrirvara þannig að hann sé tilbúinn og þægilegt að taka með í ferðalögin.


½ – 1 nektarína á mann Ferskar nektarínur Hlynsíróp

Vanilluís

Karamellusósa 120 g Dumle karamellur

1 dl rjómi

Haframulingur

1½ dl hafraflögur

½ dl kókosmjöl

½ dl hveiti

½ dl sykur

80 g smjör við stofuhita

Aðferð

  1. Byrjið á því að útbúa haframulning. Skerið smjörið í litla bita og blandið öllu saman með höndunum. Dreifið á bökunarplötu þakta bökunarpappír og bakið í 12-15 mínútur við 190°C eða þar til blandan verður gyllt og stökk. Það þarf að hræra í blöndunni nokkrum sinnum á meðan hún er að bakast en hún á það til að brenna og það þarf að fylgjast vel með.

  2. Því næst útbúið sósunna. Bræðið Dumle karamellurnar og rjóma í potti við vægan hita. Bætið aðeins mjólk saman við ef þið viljið hafa sósuna þynnri.

  3. Skerið nektarínurnar til helminga og takið steininn úr. Penslið þær með hlynsírópi ca. 1 tsk á hvern helming. 

  4. Setjið nektarínurnar með skornu hliðina niður á grillið í 4-5 mín­út­ur, snúið svo við og grillið áfram í 2-3 mín­út­ur.

  5. Berið fram með vanilluís, karamellusósunni og haframulningnum. Njótið vel! 


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page