top of page
Search


QUESADILLA MEÐ EDAMAME- & PINTO BAUNUM
Ég gerði þessar ofur ljúffengu og fljótlegu quesadilla í samstarfi við Innnes. Þær eru fylltar með edamame- og pinto baunum, rjómaosti, blaðlauk, spínati, cheddar osti og bornar fram með guacamole og sýrðum rjóma. Ég geri þessar oft enda eru þær einstaklega fljótlegar í undirbúningi. Mér finnst æðislegt að eiga til edamame baunir í frystinum og alltaf gott að eiga baunir í dós. Fyrir 3-4 Uppskriftin gerir þrjár quesadilla 6 stk tortillur (ég nota Mission tortillur með grillrö


FERSKT TORTELLINI & BRUSCHETTUR
Þetta pasta hef ég margoft gert og er einum of gott til þess að deila ekki uppskriftinni með ykkur. Ég keypti ferskt tortellini með spínat og ricotta sem fæst í öllum helstu verslunum. Pasta sósa frá Olifa (eða önnur sambærileg) ásamt rjóma, spínati, parmesan, ferskri basiliku og rauðu pestói. Útkoman er rosalega góð. Uppskriftin er tilvalin fyrir grænmetisætur. Ef að þið eruð pasta unnendur þá mæli ég mikið með. Fyrir 2-3 500 g tortellini með spínati og ricotta 1/3 tómatsósa


GRASKERS- OG SPÍNATLASAGNA
Þetta ofur ljúffenga graskers- og spínatlasagna slær alltaf rækilega í gegn þegar ég elda það! Börnin mín sem eru 8 ára og 20 mánaða elska það! Grasker og spínat passa sérlega vel saman með nóg af osti og lasagne plötum. Ég er búin að vera að prófa mig áfram með að elda úr butternut squash. Það er sætt á bragðið og minnir eilítið á sæta kartöflu. Einnig er það mjög næringarríkt og inniheldur mikið af góðum trefjum og A-vítamíni. Mér finnst ákaflega sniðugt að kaupa tvö graske


DUMPLINGS MEÐ NÚÐLUM & GRÆNMETI
Hafið þið smakkað dumplings með núðlum? Það er geggjað kombó! Hér kemur kjúklinga dumplings með eggjanúðlum, grænmeti og ljúffengri sósu. Þessi dumplings frá Itsu eru svo góð! Uppskrift fyrir 2 1 pakkning dumplings með kjúklingi frá Itsu 2-3 hreiður af eggjanúðlum frá Blue dragon (½ pakkning) 2-3 gulrætur 4-6 sveppir 1 chili 1 msk ferskur engifer 1-2 hvítlauksrif 4 vorlaukar Ólífuolía til steikingar Salt & pipar Sósa: 1 msk sesamolía frá Blue dragon 1 msk soya sósa2 msk ostru


FLJÓTLEGT SÍTRÓNUPASTA
Einfalt, fljótlegt og ofur gómsætt sítrónupasta sem klikkar ekki. Spaghetti með Philadelphia rjómaosti, sítrónu, sveppum, parmesan osti, hvítlauk og fleira góðu. Ég elska svona pastarétti sem eru fljótlegir en samt svo æðislega góðir en það tekur um 20-30 mínútur að útbúa þennan. Passar afar vel með ísköldu hvítvínsglasi og hvítlauksbrauði. Fyrir 3-4 300-400 g spaghetti frá De cecco Ólífuolía 3 skarlottulaukar 2 hvítlauksrif, pressuð 150 g kastaníusveppir 150 g venjulegir sve


RISARÆKJUR MEÐ AVÓKADÓ, TÓMÖTUM & PARMESAN
Þetta er of auðvelt og of gott til að láta þetta framhjá sér fara. Bæði gott sem forréttur eða léttur kvöldmatur. Risarækjur, avókadó, tómatar og parmesan er ljúffeng blanda sem klikkar ekki. Ég elska að eiga til risarækur í frystinum til að grípa í og þá sérstaklega til að útbúa svona auðvelda og góða rétti. Uppskrift fyrir 2 400 g risarækjur, hráar 2 hvítlauksrif, kramin Chiliflögur, eftir smekk Salt og pipar Ólífuolía 2 avókadó 10 kokteiltómatar (eða 2-3 stærri tómatar) 3
bottom of page