top of page
Search


FERSK HABANERO SALSA ÍDÝFA
Einföld og gómsæt ídýfa með rjómaosti, ferskum tómötum, habanero Tabasco, vorlauk og kóríander. Habanero Tabasco gerir ídýfuna sannarlega sterka sem ég elska en mæli með að nota hana varlega því hún er mjög sterk og það þarf ekki mikið. Best að smakka sig áfram. Upplagt sem snarl í góða veðrinu með snakki og ísköldum Corona. 1 Philadelphia rjómaostur 250 g litlir tómatar 3 vorlaukar (2/3 dl smátt skornir) 1 msk Habanero Tabasco eða magn eftir smekk 1 tsk safi úr lime 2 msk sm


BRUSCHETTUR MEÐ RJÓMAOSTI & OFNBÖKUÐUM TÓMÖTUM
Ristaðar bruschettur með hvítlauks-og kryddjurta rjómaosti, ofnbökuðum kokteiltómötum og ferskum kryddjurtum. Nammi! Svo ótrúlega bragðgott og ljúft með köldu hvítvínsglasi. Ekta til þess að bera fram í matarboðum, sem forrétt, saumaklúbbshittingum eða sem meðlæti með góðu pasta. 1 baguette brauð, ég keypti súrdeigs Philadelphia rjómaostur með hvítlauk 1 dl ólífuolía + 1 msk ólífuolía 3 hvítlauksrif 200-250 g kokteiltómatar 2 msk ferskt oregano, smátt skorið eða 1 msk þurrkað


DÁSAMLEGUR BRUSCHETTA BAKKI
Hvað er betra en dásamlegur bakki stútfullur af grilluðum bruchettum ásamt allskonar góðgæti og ískalt Prosecco rosé með? Bruschettur með þeyttum fetaosti, jarðaberjum og fíkjum og bruschettur með ferskum mozzarella, tómötum, basiliku og hráskinku. Fullkomin blanda og gaman að raða þessu fallega upp á bakka. Það er líka svo gaman að skála í fallegum glösum en þessi eru úr Heimahúsinu og fást hér. 1-2 bruschetta brauð (ég keypti súrdeigs) ½ dl ólífuolía 2 hvítlauksrif, rifin e


RISARÆKJUR MEÐ AVÓKADÓ, TÓMÖTUM & PARMESAN
Þetta er of auðvelt og of gott til að láta þetta framhjá sér fara. Bæði gott sem forréttur eða léttur kvöldmatur. Risarækjur, avókadó, tómatar og parmesan er ljúffeng blanda sem klikkar ekki. Ég elska að eiga til risarækur í frystinum til að grípa í og þá sérstaklega til að útbúa svona auðvelda og góða rétti. Uppskrift fyrir 2 400 g risarækjur, hráar 2 hvítlauksrif, kramin Chiliflögur, eftir smekk Salt og pipar Ólífuolía 2 avókadó 10 kokteiltómatar (eða 2-3 stærri tómatar) 3


SHAKSHUKA MEÐ RICOTTA OSTI
Afar gómsætur réttur sem er tilvalinn í brönsinn. Þetta er nú alls ekki hefðbundinn Shakshuka réttur en mér finnst þessi útgáfa miklu...


RISTAÐ SÚRDEIGSBRAUÐ & SÚKKULAÐISNÚÐAR
Ljúffengur og fljótlegur bröns sem klikkar ekki. Ristað súrdeigsbrauð með ofnbökuðum tómötum, ostaeggjum og avókadó og smjördeigssnúðar fylltir með súkkulaðismyrju. Ég elska svona heimagerðan bröns á sunnudögum. Ristað súrdeigsbrauð Smjör eftir smekk Avókadó eftir smekk Sesamblanda krydd Ofnbakaðir tómatar 200-250 g kokteiltómatar 1 msk ólífuolía 2 msk ferskt oregano, smátt skorið 2 msk fersk basilika, smátt skorið Salt & pipar Egg með osti 6 egg Ólífuolía til steikingar 1 dl
bottom of page