BLÁBERJA & RÓSMARÍN MOSCOW MULE
- Jan 1
- 1 min read
Moscow mule með bláberja og rósmarín twisti sem gerir kokteilinn einstaklega ljúfan. Drykkurinn inniheldur vodka, bláber, engiferbjór, rósmarín og kanil. Frískandi og ljúfur drykkur sem er tilvalið að njóta um helgina.

Fyrir einn
4 cl vodka
2 cl bláberja Mickey Finn
½ dl fersk bláber
2 dl engiferbjór
Klakar
1 rósmarín stöngull
1 kanilstöng
Aðferð
Hellið vodka, mickey finns og bláberjum í glas. Merjið þetta vel saman með kokteilamerjara.
Hellið engiferbjór saman við og fyllið glasið með klökum.
Setjið rósmarín stöngul og kanilstöng ofan í og njótið.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti









Comments