PIZZA MEÐ GRASKERI
- Jan 1
- 2 min read
Við fjölskyldan erum dugleg að útbúa heimagerðar pizzur á föstudögum eða um helgar og mér finnst svo gaman að prófa eitthvað nýtt og öðruvísi á pizzuna. Þessi pizza er virkilega góð með butternut squash, sveppum, lauk, hvítlauksmjöri, nóg af osti og borið fram með klettasalati. Ég krydda butternut squash með norður afrísku kryddblöndunni Ras el hanout sem setur punktinn yfir i-ið. Ég hvet ykkur til að prófa ef að þið viljið eitthvað öðruvísi og gómsætt!

Uppskrift að einni pizzu Pizzadeig (ég notaði uppskrift frá Ljúfmeti nema ég setti spelt í staðinn fyrir hveiti) ½ butternut squash Ólífuolía Ras el hanout Salt & pipar 1 lítill laukur 5-7 sveppir 2 hvítlauksrif, pressuð 3-4 msk smjör Rifinn cheddar ostur Rifinn mozzarella ostur Philadelphia rjómaostur Klettasalat
Aðferð:
Skerið hýðið af graskerinu og skerið það í litla bita. Blandið bitunum saman við ólífuolíu, Ras el hanout, salti og pipar
Setjið graskerið í eldfast mót eða á bökunarplötu þakta bökunarpappír og bakið við 190°C í 25-30 mínútur eða þar til graskerið er orðið mjúkt. Hrærið 1-2 sinnum í því á meðan það er að bakast.
Skerið laukinn í sneiðar og sveppina í fjóra báta og steikið upp úr smjöri. Hrærið hvítlauknum saman við í lokinn og saltið og piprið.
Fletjið deigið út og dreifið smjörblöndunni með lauknum og sveppunum yfir.
Dreifið mozzarella ostinum, cheddar ostinum og rjómaostinum yfir.
Að lokum dreifið butternut squash bitunum yfir og bakið inn í ofni í 12-15 mínútur við 220°C eða þar til osturinn er bráðnaður og pizzabotninn bakaður.
Berið fram með klettasalati og sýrðum rjóma eða hvítlaukssósu fyrir þá sem vilja.

Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti















Comments