TURKISH PASTA
- Feb 9
- 2 min read
Updated: Feb 11
Ef þið eruð að leita að réttinum sem þið getið ekki hætt að hugsa um eftir fyrsta bita þá eruð þið á réttum stað! Þetta Turkish pasta er búið að vera allsráðandi á TikTok og ég skil svo vel af hverju! Fullkomin blanda af kryddaðri nautahakksblöndu, jógúrtsósu, smjörsósu með papriku, tómötum og steinselju. Þetta er fljótlegt, auðvelt og algjör comfort food sem allir elska, hvort sem þið eruð að bjóða í mat eða bara að dekra við ykkur sjálf.

De Cecco Farfalle slaufupasta
Ólífuolía til steikingar 1 laukur, saxaður 3–4 hvítlauksrif, pressuð 500 g nautahakk 1 tsk salt 1 tsk paprikuduft 1 tsk laukduft 1/4 tsk pipar 1/2 tsk cumin
Jógúrtsósa: 2 dl grísk jógúrt 1 tsk salt 1/2 tsk laukduft 1/4 tsk pipar 1/2 tsk hvítlauksduft (eða pressað hvítlauksrif)
Smjörsósa: 150 g smjör 2 tsk paprikuduft
Toppa meði: Litlir tómatar, skornir í helminga Fersk steinselja, söxuð
Aðferð:
Hitið olíu á pönnu og steikið saxaðan lauk þar til hann verður glær. Bætið pressuðum hvítlauk út í og steikið áfram í stutta stund. Bætið nautahakkinu á pönnuna, kryddið með salti, paprikudufti, laukdufti, pipar og cumin. Steikið þar til hakkið er fulleldað og bragðgott.
Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum á pakkningu.
Blandið grískri jógúrt, salti, laukdufti, pipar og hvítlauksdufti (eða ferskum hvítlauk) í skál. Hrærið þar til sósan verður silkimjúk.
Bræðið smjörið í potti og bætið paprikudufti út í. Leyfið sósunni að freyða aðeins svo hún fái fallegan, rauðan lit og ríkt bragð.
Dreifið pasta á diska fyrir hvern og einn. Hellið jógúrtsósunni yfir pastað, nautahakkinu, smjörsósunni, tómötum og svo að lokum stráið ferskri steinselju yfir allt.
Tips: Ef þið viljið auka bragð, stráið smá fetaosti yfir réttinn eða bætið chili-flögum við smjörsósuna fyrir extra hita!


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes









Comments