top of page
Search


BANANA MUFFINS
Svo gómsætar muffins sem klikka ekki. Inniheldur banana kanil, haframjöl, súkkulaði og fleira góðu. Tekur enga stund að skella í þessar....


RISTAÐ SÚRDEIGSBRAUÐ & SÚKKULAÐISNÚÐAR
Ljúffengur og fljótlegur bröns sem klikkar ekki. Ristað súrdeigsbrauð með ofnbökuðum tómötum, ostaeggjum og avókadó og smjördeigssnúðar fylltir með súkkulaðismyrju. Ég elska svona heimagerðan bröns á sunnudögum. Ristað súrdeigsbrauð Smjör eftir smekk Avókadó eftir smekk Sesamblanda krydd Ofnbakaðir tómatar 200-250 g kokteiltómatar 1 msk ólífuolía 2 msk ferskt oregano, smátt skorið 2 msk fersk basilika, smátt skorið Salt & pipar Egg með osti 6 egg Ólífuolía til steikingar 1 dl


SÚKKULAÐI GRANÓLA BITAR
Fljótlegir og gómsætir granóla bitar sem innihalda aðeins fjögur hráefni. Þeir innihalda haframjöl, hlynsíróp, súkkulaði og...


LJÚFFENGT BRIOCHE BRAUÐ MEÐ ÞEYTTUM RICOTTA
Dúnmjúkt og bragðgott brioche brauð og þeyttur ricotta ostur með ofnbökuðum tómötum. Þegar ég fór til Berlínar um miðjan október þá fékk ég alveg dásamlegt brioche brauð með þeyttum osti. Ég hef ekki hætt að hugsa um þetta síðan og ég varð að prófa að útbúa svona sjálf. Ég leitað eftir góðri uppskrift og datt inn á þessa eftir einn af mínum uppáhalds matarbloggurum, Half baked Harvest. Þetta heppnaðist alveg ótrúlega vel og vá hvað ég mæli með að þið prófið. Þetta er smá tím


MÖNDLU CROISSANT
Hvað er ljúffengra en nýbakað möndlu croissant með kaffibollanum? Hér kemur uppskrift að einföldu möndlu croissant sem passar sérlega vel með sunnudagskaffinu. Croissant fyllt með dásamlegri möndlufyllingu og bakað inn í ofni. Ég elska að panta mér möndlu croissant á kaffihúsi og hef lengi ætlað að útbúa svona sjálf. Pinterest hjálpaði mér svo að setja saman þessa ljúffengu uppskrift. Þið sælkerarnir verðið að prófa þetta. 4 croissant 40 g smjör, við stofuhita ½ dl sykur 1 d


MUFFINS MEÐ ÞRENNS KONAR SÚKKULAÐI
Þessar muffins eru dásamlega góðar, bæði nýbakaðar og daginn eftir. Suðusúkkulaði, mjólkursúkkulaði og hvítt súkkulaði gerir þessar...


MONKEY BREAD MEÐ NÓG AF OSTI
Bakað pizzadeig með cheddar osti, parmesan, blaðlauk, hvítlauk og steinselju er afar einfalt að útbúa og svakalega gott. Monkey bread er...


DÁSAMLEGIR PIZZASNÚÐAR
Mjúkir, flöffý og dásamlega bragðgóðir pizzasnúðar með fyllingu sem inniheldur beikonsmurost, tómatpúrru, lauk, sýrðan rjóma, oregano og cheddar ost. Þetta er ekki þessi týpíski pizzasnúður en gefur honum ekkert eftir. Að mínu mati finnast mér þessir miklu betri og þeir voru borðaðir upp til agna á einum degi á mínu heimili! Þið hreinlega verðið að prófa! Uppskrift gerir 14-16 pizzasnúða 400 g hveiti 1 tsk salt 1 bréf ger (12 g) 40 g smjör 1 msk hunang 1 dl vatn 0,8 dl mjólk


MJÚKIR KANILSNÚÐAR MEÐ KARAMELLUGLASSÚR
Hvað er betra en nýbakaðir og mjúkir kanilsnúðar? Þessir eru dásamlega góðir og dúnamjúkir. Það besta við þessa uppskrift er að það tekur...


BLÁBERJASKONSUR MEÐ HVÍTU SÚKKULAÐI
Ég gerði þessar ljúffengu skonsur með bláberjum og hvítu súkkulaði og mikið eru þær góðar! Þær eru afar einfaldar og ekki alltof sætar. Passa sérlega vel með kaffinu og svo er mjög gott að smyrja þær með smjöri. Dásamlegt í helgarbrönsinn! Uppskrift gerir 8 skonsur 300 g hveiti + meira til að hnoða 2 msk sykur 1 msk lyftiduft 1 tsk salt 170 g smjör, kalt 2 egg 130 ml rjómi 100 g bláber 100 g hvítir súkkulaðidropar 1 msk sykur 1 egg Aðferð Hrærið saman hveiti, sykri, lyftiduft
bottom of page