BBQ KJÚKLINGASALAT MEÐ ANANAS, AVÓKADÓ & KALDRI JÓGÚRTSÓSU
- Jan 4
- 2 min read
Sumarlegur grillréttur sem er bæði ferskur og góður!! Djúsí BBQ kjúklingalæri með smá ananas og pínu chili með salati, avókadó, fetaosti, pistasíuhnetum, tómötum og rauðlauk. Sósan setur punktinn yfir i-ið. Létt hvítvín fer líka einstaklega vel með. Fullkomið í sumarveisluna eða bara sem einfaldur kvöldverður.

Fyrir 4 700 g úrbeinuð kjúklingalæri
Salt og pipar
1 msk ólífuolía
1dl Hunts BBQ sósa
1dl smátt skorinn niðursoðinn ananas (með 1-2 msk safa)
1 tsk chipotle mauk (má sleppa fyrir mildari útgáfu)
1 tsk hvítlauksduft1 tsk paprikuduft
Jógúrtsósa með lime & steinselju
200 g grísk jógúrt eða sýrður rjómi
1 msk majónes
Safi úr ½ lime
1 hvítlauksrif, pressað eða 1 tsk hvítlauksduft
1 tsk hunang
1 msk steinselja
Salt og pipar
Salat eftir smekk
1 avókadó, skorinn í bita
¼ rauðlaukur, í þunnar sneiðar
2 dl kirsuberjatómatar, skornir í tvennt
½ dl ristaðar pistasíur
Fetaostur eftir smekk (mér finnst best að nota hreinan)
Aðferð:
Byrjið á að blanda kjúklingnum saman í skál með BBQ sósu, ananas, ólífuolíu, chipotle mauki, hvítlauksdufti, paprikuduft, salti og pipar. Látið marinerast í a.m.k. 30-60 mínútur – eða yfir daginn ef þið hafið tíma.
Hitið grillið vel og penslið það létt með olíu. Grillið kjúklingalærin í 4–5 mínútur á hvorri hlið, eða þar til þau eru elduð í gegn og fallega gljáð.
Á meðan kjúklingurinn grillast: blandið saman öllum hráefnum í jógúrtsósuna og smakkið til með salti, pipar og lime. Kælið í ísskáp þar til salatið er tilbúið.
Skerið kjúklinginn í strimla eða bita þegar þau eru tilbúin og látið hvíla örlítið.
Setjið salat, kirsuberjatómata, rauðlauk, avókadó, kjúklinginn, pistasíur og fetaost í skál eða á stórt fat.
Dreifið sósunni yfir salatið eða berið hana fram til hliðar og njótið!



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
Samstarf við Innnes









Comments