BBQ PIZZA
- Jan 1
- 1 min read
Pizza með kjúklingi í BBQ sósu, rjómaosti, rifnum osti, nachosi, rauðlauk og toppuð með avókadó, tómötum og kóríander. Þetta er stórkostleg blanda sem svíkur engan. Best finnst mér svo að kaupa tilbúinn heilan kjúkling og rífa hann niður. Get svo notað hann í allskonar rétti.

Uppskrift að einni pizzu
1 Mission pizza base eða annar pizzabotn(fæst t.d. í Krónunni og Fjarðarkaup) 2-3 dl rifinn kjúklingur 1 dl Sweet BBQ sósa frá Heinz 2 msk hreinn Philadelphia rjómaostur ½ dl rifinn cheddar ostur ½ dl rifinn mozzarella ostur Rauðlaukur eftir smekk, skorinn í strimla Mission tortilla flögur eftir smekk ½ avókadó 5 kokteiltómatar Ferskur kóríander eftir smekk
Aðferð
Byrjið á því að blanda kjúklingnum saman við BBQ sósuna í skál og setjið til hliðar.
Smyrjið pizzu botnanna með rjómaosti og dreifið kjúklingum jafnt yfir.
Stráið yfir rifnum cheddar- og mozzarella osti, dreifið rauðlauknum og brjótið tortilla flögur yfir allt.
Bakið í ofni við 200°C í 12-15 mínútur.
Toppið pizzuna með smátt skornu avókadó, kokteiltómötum og ferskum kóríander.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti



Comments