top of page

BYGG SALAT MEÐ EDAMAME BAUNUM

  • Jan 2
  • 1 min read

Dásamlega gott, einfalt og hollt salat sem er gott í hádegismat eða kvöldmat. Salatið inniheldur bygg, salat, edamame baunir, ljúffenga dressingu, avókadó, pistasíur og fleira góðgæti. Það er frábært að taka það með í vinnuna og borða í hádeginu.


Fyrir einn 2 dl eldað bygg 2 dl smátt skorið salat 1 dl frosnar edamame baunir Krydd: Cayenne pipar, hvítlauksduft, salt og pipar 1-2 msk smátt skorinn vorlaukur 1 dl gúrka, smátt skorin 1/2 dl tómatar, smátt skornir 1/2 avókadó, smátt skorið 1 dl parmesan ostur Toppa með: Pistasíum og spírum

Dressing: 1 msk safi úr sítrónu 1 msk appelsínusafi (má sleppa og setja 1 msk safa úr sítrónu í staðinn) 2 msk ólífuolía Krydd: 1/4 tsk salt, 1/4 tsk pipar, 1/4 tsk hvítlauksduft, 1/4 laukduft

Aðferð:

  1. Sjóðið bygg eftir leiðbeiningum á pakkningu (mæli með að gera mikið í einu og nota í fleiri rétti).

  2. Steikið edamame baunirnar upp úr ólífuolíu og kryddið eftir smekk.

  3. Smátt skerið salat, tómata, gúrku, vorlauk og avókadó.

  4. Blandið öllu saman í dressinguna.

  5. Blandið öllum hráefnunum saman og njótið.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Comments


bottom of page