FLJÓTLEG KÍNÓASKÁL
- Jan 1
- 1 min read
Ljúffeng, holl og fljótleg uppskrift að kínóaskál. Þennan rétt útbý ég oft í hádeginu eða sem léttan kvöldmat og mér líður alltaf svo vel eftir hann. Kínóaskál með grænmeti, eggjum, fetaosti, cheddarosti, avókadó og spírum. Ég nota bara það grænmeti sem er til í ísskápnum hverju sinni.

Fyrir 1 1-2 dl eldað kínóa
Ólífuolía 2-3 sveppi, smátt skornir 1 lúka spínat 1 dl rifinn cheddar ostur Laukduft Paprikuduft Cayenne pipar Salt & pipar 1-2 dl brokkólí, smátt skorið 1 gulrót, smátt skorin 1 egg ½ avókadó, skorið í sneiðar Stappaður fetakubbur eftir smekk Radísuspírur eða aðrar spírur eftir smekk 1-2 sítrónubátar
Aðferð:
Dreifið brokkólíi og gulrót á bökunarplötu þakta bökunarpappír. Dreifið ólífuolíu, salti og pipar yfir og bakið í 10-15 mínútur við 190°C.
Sjóðið egg eftir smekk. Mér finnst gott að hafa rauðuna aðeins mjúka.
Steikið sveppi upp úr ólífuolíu. Bætið spínati saman við þegar sveppirnir hafa mýkst aðeins.
Bætið kínóa og cheddar osti saman við og kryddið með laukdufti, paprikudufti, cayenne pipar, salti og pipar. Blandið öllu vel saman.
Dreifið kínóablöndunni í skál eða á disk. Dreifið brokkólíi og gulrótum yfir. Toppið með egginu, avókadó, fetakubbi og spírum. Kreistið safa úr sítrónu yfir avókadóið og ég kryddaði með sesamblöndu. Njótið.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti











Comments