top of page

GRILLAÐ FISKITACOS MEÐ ANANAS SALSA

  • Jan 1
  • 1 min read

Dásamlegt tacos með grilluðum fiski sem ég gerði í samstarfi við Krónuna þar sem öll hráefnin í uppskriftinni fást. Grillaðir þorskhnakkar í ljúfum kryddlegi, salsa með ferskum ananas, avókadó og tómötum, jalapeno sósa og litlar tortillur frá Mission. Sumarlegur, ferskur og virkilega gómsætur réttur. Það passar mjög vel að setja ferskan ananas í salsað og bera fram með fiskinum. Namminamm!

Fyrir 3-4 (Ég mæli með 3 litlum tortillum á mann)

500 g þorskhnakkar

Safi úr 1/2 lime

1-2 msk Krónu krydd – Ertu ekki að grænast? eða aðra góða kryddblöndu fyrir fisk

1 msk ferskt kóríander

1 tsk cumin

1 msk ólífuolía

Litlar tortillur

Stappaður fetaostur eftir smekk

Ananas salsa ¼ – ½ ferskur ananas 2 avókadó 10 kokteiltómatar 1 msk kóríander Safi úr ½ lime Salt & pipar eftir smekk

Einföld jalapeno sósa 2 dl majónes (einnig gott að setja smá sýrðan rjóma) 1-2 msk jalapeno úr krukku Salt & pipar

Aðferð

  1. Byrjið á því að skera fiskinn í bita eftir smekk og blandið saman í skál við safa úr lime, Krónu kryddið – Ertu ekki að grænast, cumin og ólífuolíu.

  2. Smátt skerið ananas, avókadó, kokteiltómata og kóríander. Blandið öllu saman, kreistið lime yfir og saltið og piprið.

  3. Blandið saman majónesi, smátt söxuðu jalapeno, salti og pipar eða setjið í töfrasprotann/matvinnsluvél.

  4. Dreifið fiskinum á álbakka og grillið í 10 mínútur eða þar til fiskurinn er eldaður í gegn. 

  5. Grillið tortillurnar á vægum hita og fyllið þær með salsanu, fiskinum og sósunni. Mmm… og njótið!


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Krónuna

Comments


bottom of page