top of page

HJÓNABANDSSÆLA MEÐ VÍNBERJASULTU

  • Feb 1
  • 1 min read

Hjónabandssæla er bæði einföld og afar ljúffeng kaka sem gott er að eiga til bjóða með kaffinu. Það tekur enga stund að útbúa hana en hún inniheldur m.a. haframjöl, kókosmjöl og pekanhnetur sem ásamt vínberjasultu gera hana alveg ómótstæðilega. Mér finnst síðan nauðsynlegt að bera kökuna fram með þeyttum rjóma.


200 g brætt smjör 150 g púðursykur 150 g fínt spelt (eða hveiti) 150 g haframjöl 1½ dl kókosmjöl 1 dl saxaðar pekanhnetur 1 tsk matarsódi 1 tsk vanilludropar ⅔ krukka vínberjasulta frá St. Dalfour

Aðferð

  1. Hrærið öllum hráefnunum (fyrir utan sultuna) saman í hrærivél (einnig hægt að hræra með sleif).

  2. Dreifið ⅔ af deiginu í eldfast form og þrýstið deiginu í formið.

  3. Smyrjið sultunni ofan á og dreifið restinni af deiginu ofan á.

  4. Bakið í ofni við 180°C í 20-25 mínútur eða þar til kakan er fullbökuð. Berið fram með þeyttum rjóma og njótið.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Innnes

Comments


Commenting on this post isn't available anymore. Contact the site owner for more info.
bottom of page