LITLAR DÖÐLUKÖKUR MEÐ KARAMELLU
- Jan 3
- 1 min read
Þessar dásamlegu döðlukökur eða „Sticky toffee“ pudding eru svo mjúkar og djúsí að þær bráðna upp í manni. Þær eru svo bornar fram með himneskri karamellusósu úr Werther’s karamellum. Passar vel sem eftirréttur og þá er gott að hafa rjóma eða ís með.
Uppskrift gerir 12 litlar kökur 250 g döðlur 3 dl vatn
1 tsk matasódi
1 ½ dl púðursykur
2 egg 100 g smjör við stofuhita 3 dl hveiti 2 tsk lyftiduft ½ tsk salt Pam sprey Cadburys kakó 1 poki Wearthers rjómakaramellur 1 dl rjómi
Berið fram með ís eða þeyttum rjóma.
Aðferð
Setjið döðlur og vatn í pott og hitið þar til vatnið byrjar að sjóða. Slökkvið á hellunni og leyfið þessu að standa í 5-10 mínútur,
Maukið saman með töfrasprota eða í matvinnsluvél.
Blandið smjör, sykur og egg saman í hrærivél.
Sigtið hveiti, lyftiduft og salt út í blönduna og hrærið.
Bætið svo döðlunum saman við og hrærið.
Spreyið form með Pam spreyi og stráið kakói yfir í gegnum sigti.
Dreifið í muffinsformin og bakið í 25 mínútur við 180°C.
Á meðan kökurnar bakast er gott að útbúa karamellusósuna. Bræðið karamellurnar saman við rjómann og blandið vel saman.
Berið kökurnar fram með karamellusósunni, ís eða rjóma.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes



Comments