top of page

LJÚFFENGT ANDASALAT

  • Jan 2
  • 1 min read

Gott og einfalt andasalat sem ég gerði í samstarfi við Krónuna þar sem öll hráefnin í uppskriftinni fást. Salatið inniheldur m.a. andalæri, granatepli, fetaost, edamame baunir og  wasapi hnetur og sló algjörlega í gegn. Þessi samsetning var alveg ótrúlega góð.

Fyrir fjóra 1 dós Rougié confit de canard Salatblanda frá Hollt og gott (með klettasalati, baby leaf ofl.) 4 dl edamame baunir frá Gestus, frosnar Salt og pipar 4 smágúrkur 4-6 vorlaukar 1 granatepli 2 dl salatostur (fetaostur) 2 dl wasabi hnetur Kóríander eftir smekk

Sósa: 100 ml hoisin sósa frá Blue dragon 4 msk sesamolía frá Blue dragon 4 msk ólífuolía

Aðferð

  1. Bakið andaconfit eftir leiðbeiningum á dós og rífið það með tveimur göfflum. Mjög gott að láta dósina liggja í heitu vatni áður en þið takið andalærin úr henni.

  2. Steikið edamame baunir og kryddið með salti og pipar.

  3. Skerið gúrkur og vorlauk smátt.

  4. Skerið fræin úr granateplinu og skolið.

  5. Smátt skerið eða stappið salatostinn og saxið wasabi hnetur.

  6. Blandið hráefnunum í sósuna saman í skál.

  7. Dreifið salatblöndu í botninn á stórri skál eða á diska. Því næst dreifið þið edamame baunum, gúrku, andaconfit, vorlauk, fræjum úr granateplum, salatosti, wasabi hnetum og kóríander. Að lokum dreifið þið sósunni yfir eftir smekk og berið salatið fram með restinni af henni.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Krónuna

Comments


bottom of page