OFNBAKAÐ PENNE PASTA MEÐ PESTÓ & GRÆNMETI
- Jan 2
- 2 min read
Djúsí og næringaríkur pastaréttur sem líkist grænmetislasagna nema bara með penne pasta í staðinn fyrir lasagnaplötur. Bakað í ofni með nóg af grænmeti, osti, bechamel sósu og rauðu pestói. Bragðgott, dásamlegt og passar vel með ljúfu rauðvíni.

Uppskrift fyrir 6 500 g penne pasta frá De cecco 4 gulrætur 1 lítill laukur 3 hvítlauksrif 200 g sveppir 1 kúrbítur 200 g brokkólí 250 g kokteiltómatar 1 rautt pestó frá Filippo berio Ólífuolía Salt & pipar Gott að krydda með þurrkaðri basiliku og oregano ½ dl parmigiano reggiano 3 dl rifinn mozzarella 2 dl rifinn havarti ostur
Bechamel sósa 50 g smjör 4 msk hveiti 4-5 dl mjólk Salt & pipar Laukduft 2 dl rifinn parmigiano reggiano
Aðferð
Byrjið á því að skera gulrætur, lauk, sveppi, kúrbít, brokkolí og tómata í bita.
Steikið gulræturnar upp úr ólífuolíu og mýkið þær aðeins.
Bætið svo lauk og hvítlauk saman við og steikið í 2 mínútur á miðlungshita. Setjið sveppi, kúrbít, brokkólí og kokteiltómata saman við. Steikið í 4-5 mínútur og bætið pestóinu saman við og kryddið.
Sjóðið pastað eftir leiðbeiningum.
Dreifið bechamel sósunni í botninn á ca. 26 x 36 cm eldföstu móti og setjið til skiptis penne pasta, grænmeti og bechamel sósu. Þið ættuð að ná þremur lögum ef þið notið álíka stórt mót og ég.
Dreifið rifnum mozzarella, havarti osti og parmesan yfir allt saman og bakið inn í ofni við 190°C í 10-12 mínútur. Gott að bera fram með klettasalati og ólífuolíu, Njótið.
Bechamel sósa
Bræðið smjör í potti og bætið hveiti saman við. Hrærið í hveitibollu.
Hellið mjólkinni saman við og hrærið þar til hún hefur þykknað aðeins.
Kryddið eftir smekk og hrærið parmigiano reggiano saman við. Bætið mjólk saman við ef að þið viljið hafa sósuna þynnri.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes



















Comments