top of page

ÖÐRUVÍSI BAUNASÚPA Á SPRENGIDAG

  • Jan 1
  • 1 min read

Baunasúpa er klassískur réttur sem margir elska að fá sér á sprengidag og mér fannst mér tilvalið að prófa að gera hana á minn hátt með baunasúpugrunni frá Kötlu. Ég toppaði súpuna með sýrðum rjóma, stökku beikoni og steinselju, það setti punktinn yfir i-ið og gerði hana ferskari. Margir setja beikon ofan í súpuna en ég ákvað að baka beikonið þangað til að það varð mjög stökkt og bera það fram með súpunni í staðinn fyrir saltkjötið. Svo er líka bara mjög gott að sleppa alveg kjötinu. Súper einfaldur og saðsamur réttur sem tekur 30 mínútur í eldun.

Fyrir 4

1 baunasúpugrunnur frá Kötlu

1 lítill blaðlaukur eða ½ stór blaðlaukur

1 lítil sæt kartafla eða ½ stór sæt kartafla

2-3 gulrætur

6-8 kartöflur

6-8 beikonsneiðar

3-4 dl vatn (eftir smekk, fer eftir hvað þið viljið hafa súpuna þykka)

Cayenne pipar

Pipar

Sýrður rjómi

Fersk steinselja

Aðferð

  1. Skrælið kartöflurnar og skerið allt grænmetið í litla bita.

  2. Hellið súpunni í pott.

  3. Blandið grænmetinu saman við súpuna. Kryddið og bætið vatni eftir þörfum.

  4. Látið súpuna malla í 30 mínútur eða þar til grænmetið er orðið eldað. Passið að láta hana ekki bullsjóða.

  5. Bakið beikonið á meðan súpan mallar í pottinum. Bakið það við 200°C í 10-13 mínútur eða þar til það er orðið mjög stökkt. Skerið beikonið í litla bita þegar það er tilbúið.

  6. Berið súpuna fram með sýrðum rjóma, beikoni og ferskri steinselju.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Kötlu

Comments


bottom of page