GIRNILEGAR LITLAR PIZZUR : ÞRJÁR ÚTGÁFUR
- Jan 1
- 2 min read
Í samstarfi við Hatting þá gerði ég þrjár útgáfur af ljúffengum pizzum til að gefa ykkur hugmyndir. Það eru örugglega fleiri en ég sem eru oft með pizzakvöld og þá sérstaklega á föstudagskvöldum. Það eru líka örugglega margir sem þurfa að gera nokkrar útgáfur af pizzunum. Litlu krílin okkar vilja oft fá einfaldar útgáfur af pizzum en við fullorðna fólkið viljum eitthvað öðruvísi. Þá eru litlar pizzur algjör snilld! Hver og einn getur gert sína útgáfu og það getur skapað sérstaklega skemmtilega stemmingu.
Þessar pizzur eru allar dásamlega góðar. Mæli með að hver og einn setji sitt topping á pizzurnar. Klettasalat, kokteiltómatar, avókadó, basilika, parmesan og steinseljusósan passar með öllum pizzunum.

Pizza með risarækjum 1 lítill pizzabotn frá Hatting 6-8 risarækjur1 hvítlauksrif Chili explosion Salt & pipar Ólífuolía Rjómaostur Rifinn mozzarella ostur Klettasalat Kokteiltómatar Rifinn parmesan
Aðferð
Hrærið risarækjurnar saman við ólífuolíu, pressað hvítlauksrif, chili explosion, salt og pipar. Steikið risarækjurnar upp úr ólífolíu.
Smyrjið pizzabotninn með rjómaosti og stráið rifnum mozzarella yfir.
Dreifið risarækjunum ofan á og bakið í 6-8 mínútur við 230°C.
Toppið að lokum pizzuna með klettasalati, kokteiltómötum og rifnum parmesan.
Pizza með kjúklingi og avókadó 1 lítill pizzabotn frá Hatting Maukaðir tómatar úr krukku Heitt pizzakrydd frá Pottagöldrum (eða annað gott krydd) Rifinn mozzarella 1 dl rifinn kjúklingur Rjómaostur ¼-½ avókadó Klettasalat Kokteiltómatar
Steinseljusósa 1 dl fersk steinselja 4 msk majónes 3 msk sýrður rjómi Salt og pipar
Aðferð
Smyrjið maukuðum tómötum yfir pizzabotninn, kryddið og stráið rifnum mozzarella yfir.
Dreifið kjúklingi og rjómaosti ofan á og bakið í 6-8 mínútur við 230°C.
Blandið öllu hráefninu saman með töfrasprota eða með skeið.
Toppið með klettasalati, avókadó, kokteiltómötum og steinseljusósunni.
Grænmetispizza með brokkólí og kúrbít 1 pizzabotn frá Hatting 1½ dl brokkólí 1 dl kúrbítur Ólífuolía Hvíltauksrif Salt og pipar Maukaðir tómatar úr krukku Ferskur mozzarella Fersk basilika
Aðferð
Skerið brokkólí og kúrbít smátt. Hrærið því saman við ólífuolíu, hvítlauksrif, salt og pipar og steikið.
Smyrjið pizzabotn með maukuðum tómötum og dreifið brokkólíinu, kútbítnum og ferskum mozzarella yfir.
Bakið í 6-8 mínútur við 230°C og toppið með ferskri basiliku. Það er líka mjög gott að toppa með klettasalati, kokteiltómötum, avókadó og steinseljusósu.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Hatting



Comments