GÓMSÆTUR JALAPENO- & CHEDDAR BORGARI
- Jan 2
- 2 min read
Ofur djúsí heimagerður borgari með jalapeno, cheddar osti og dásamlegri hamborgarasósu frá Heinz. Stundum er næs að gera aðeins extra og útbúa hamborgarana sjálf/ur frá grunni og setja þá á næsta level. Hvet ykkur til að prófa þennan, best að grilla hann! Passar sérlega vel með kartöflubátum og ísköldum bjór.

Uppskrift fyrir 4
500 g nautahakk
1 egg
2-3 msk jalapeno úr dós, smátt skorið
1½ dl rifinn cheddar ostur
4 msk pankó raspur
Krydd: 1 tsk laukduft, 1 tsk salt, ¼ tsk pipar
4 hamborgarabrauð
Cheddar ostur í sneiðum (mér finnst þessi mjúki bestur)
Kál
Buffalo tómatur
Rauðlaukur
Avókadó
Heinz American Style Burger sósa
Kartöflubátar
8-10 stk kartöflur
1 msk ólífuolía
Krydd: ½ tsk chiliduft, ½ tsk laukduft, ¼ tsk pipar, 1 tsk salt
Heinz majónes
Tabasco Sriracha sósa
Ferskt kóríander
Aðferð
Byrjið á því að blanda saman hakki, eggi, smátt skornu jalapeno, rifnum cheddar osti, raspi og kryddi í skál og hrærið vel saman með sleif eða skeið.
Notið hendurnar til að útbúa pylsu úr nautahakksblöndunni. Skiptið henni í 4 jafna hluta og hnoðið í fjórar kúlur. Þrýstið á kúlurnar og myndið hamborgara.
Skerið tómatinn, rauðlaukinn og avókadóið í sneiðar.
Steikið hamborgarana á heitri pönnu eða grillið þar til þeir eru eldaðir í gegn.
Setjið cheddar ost sneiðar í lokin.
Grillið eða hitið hamborgarabrauðið.
Dreifið sósunni á botninn, svo salati, kjöti, tómatsneið, rauðlauk, avókadó, meiri sósu og lokið borgaranum. Njótið vel!
Kartöflur
Skerið kartöflurnar í báta og blandið saman við ólífuolíu og krydd í skál.
Dreifið í eldfast form og bakið í um 30 mínútur við 200°C.
Dreifið majónesi, sriracha sósu og kóriander yfir þær eftir smekk.






Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes











Comments