top of page

KJÚKLINGUR Í RJÓMAOSTASÓSU MEÐ SVEPPUM & ESTRAGON

  • Jan 1
  • 1 min read

Ljúffengur helgarmatur sem er fullkominn með góðu rauðvíni. Kjúklingur í rjómaosta- og estragonsósu með sveppum og borinn fram með tagliatelline. Philadelphia rjómaosturinn og estragonið setja svo punktinn yfir i-ið. Það er einnig gott að bera réttinn fram með hrísgrjónum eða byggi og góðu salati. Innblásturinn af þessari uppskrift er réttur sem mamma gerði svo oft sem sló alltaf í gegn og ég varð að prófa að gera mína útgáfu. Það er auðvelt og þægilegt að útbúa réttinn og ég mæli með að þið prófið!

Uppskrift fyrir 3-4 600 g úrbeinuð kjúklingalæri 1-2 msk smjör til steikingar 1 lítill laukur, smátt skorinn 8-10 sveppir, skornir í sneiðar 2 dl rjómi ½ pakkning Philadelphia rjómaostur 1 msk dijon sinnep 3-4 tsk estragon 1 tsk kjúklingakraftur frá Oscar Salt og pipar eftir smekk Tagliatelline frá De Cecco

Aðferð

  1. Byrjið á því að steikja kjúklinginn upp úr smjöri og kryddið með salti og pipar. Steikið þangað til að hann er eldaður í gegn og takið til hliðar.

  2. Steikið lauk og sveppi upp úr smjöri á sömu pönnu.

  3. Bætið út í rjóma, rjómaosti, dijon sinnepi, estragoni, kjúklingakrafti, salti og pipar. Hrærið saman og látið malla í smá stund. Mæli með að smakka sósuna til.

  4. Sjóðið tagliatelline eftir leiðbeiningum á pakkningu.

  5. Blandið kjúklingnum saman við sósuna, berið fram með tagliatelline og njótið!


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Innnes

Comments


bottom of page