top of page

LJÚFFENGIR BBQ KJÚKLINGASTRIMLAR

  • Jan 2
  • 2 min read

Lúxus kjúklingastrimlar eins og þeir gerast bestir. Þeir eru mjúkir í gómsætum BBQ hjúp og bornir fram með gráðostasósu og kartöflubátum. Punkturinn yfir i-ið er svo að para þá saman með góðu rauðvíni. Í uppskriftina nota ég mjög góða BBQ sósu frá Bulls-eye með smokey Chipotle sem rífur aðeins í.

700 g kjúklingalundir frá Rose Poultry (1 poki) 1-2 egg 1 dl hveiti Krydd: 1 tsk salt, ¼ dl pipar, ½ tsk laukduft,

½ tsk hvítlauksduft, ½ dl ólífuolía 1 dl Bulls-eye Smokey Chipotle BBQ sósa Toppa með: Sesamfræjum, vorlauk, chili og kóríander eftir smekk

Kartöflur 3-4 stórar bökunarkartöflur ½ dl ólífuolía Krydd: 2 tsk gróft sjávarsalt, 1 tsk laukduft, 1 tsk hvítlauksduft, ½ tsk pipar

Sósa ½ dl Heinz majónes 1 dl sýrður rjómi 2 msk stappaður gráðostur 1 msk safi úr lime Salt & pipar eftir smekk

Aðferð

  1. Pískið egg í skál og dreifið hveiti og kryddi á disk.

  2. Hrærið öllum hráefnunum í sósuna saman í skál og setjið til hliðar.

  3. Snyrtið kjúklingalundirnar. Veltið þeim upp úr egginu og síðan hveitinu.

  4. Raðið kjúklingnum á bökunarplötu þakta bökunarpappír og dreifið ólífuolíu yfir.

  5. Bakið í 20 mínútur við 190°C á blæstri. 

  6. Hellið BBQ sósunni yfir og dreifið á alla kjúklingastrimlana. Setjið þá aftur inn í ofninn og bakið í 8-10 mínútur í viðbót.

  7. Dreifið  sesamfræjum, sneiðum af vorlauk, sneiðum af chili og kóríander yfir kjúklingstrimlana. Berið fram með kartöflubátum og gráðostasósu, Njótið.

Kartöflubátar

  1. Skerið kartöflurnar í langa báta.

  2. Setjið kartöflubátana, ólífuolíu og krydd saman í skál og blandið vel saman.

  3. Bakið í ofnið í 30-40 mínútur við 190°C á blæstri.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Innnes

Comments


bottom of page