top of page

OFNBAKAÐ PENNE MEÐ PARMESAN KJÚKLINGI

  • Jan 18
  • 1 min read

Ekta „comfort“ matur sem allri fjölskyldunni finnst góður. Klassískur parmesan kjúklingur eða „Chicken parmigiana” er fyrirmynd réttarins en þessi útgáfa er fljótlegri og einfaldari. Rétturinn inniheldur pasta, kjúkling, cherry- og basil pastasósu, rjómaost, parmesan, panko rasp og mozzarella.

Fyrir fjóra 3-4 eldaðar kjúklingabringur, skornar í strimla 300-400 g penne pasta frá De Cecco 1 Philadelphia rjómaostur 1 dós Heinz Cherry Tomato & Basil pasta sósa Salt og pipar eftir smekk 4 dl rifinn parmesan ostur 1 dl panko rasp 30 g smjör 1-2 kúlur ferskt mozzarella Fersk basilika

Aðferð

  1. Byrjið á því að sjóða penne pasta eftir leiðbeiningum.

  2. Dreifið rjómaosti á botninn á eldföstu formi.

  3. Sigtið vatnið frá pastanu og blandið Heinz sósunni saman við. Kryddið með salti og pipar eftir smekk.

  4. Dreifið kjúklingnum yfir.

  5. Bræðið smjör og blandið saman við panko rasp og parmesan ost.

  6. Dreifið raspinum yfir kjúklinginn og bakið í ofni í 7 mínútur við 180°C.

  7. Rífið ferskan mozzarella yfir og bakið í aðrar 7 mínútur.

  8. Dreifið basilíku yfir og njótið.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við S4S

Comments


bottom of page