top of page

PASTASALAT MEÐ FERSKUM MAÍS, TÓMÖTUM & KJÚKLING

  • Jan 2
  • 1 min read

Einfalt og gómsætt kalt pastasalat með ferskum maís, fusilli pasta, tómötum, kjúklingi og fetaosti. Þegar ferskur maís kemur í verslanir er æðislegt að nota það í þessa uppskrift! Maís er svo góður með pastanu, fetaostinum, tómötunum og sósunni og gerir alveg extra gott bragð. Rétturinn er einnig ljúfur í veislum en þá er sniðugt að sleppa avókadó eða bæta því við rétt áður en rétturinn er borinn fram. Mæli með að bera þetta fram með ísköldu rósavíni.

Fyrir 4 400 g fusilli frá De Cecco 2 ferskir maískólfar Krydd: Salt, pipar og cayenne pipar 1-2 msk smjör til steikingar 4 dl litlir tómatar (ég notaði medley tómata) 4 dl rifinn kjúklingur 2 dl fetakubbur (hreinn fetaostur) 2 avókadó (má sleppa, bara gott ef borðað er strax) Salat eftir smekk Toppa með: fetaosti og ferskum kóríander eða steinselju

Sósa 2 dl Heinz majónes Safi úr 1 lime 1-2 msk Sriracha eða sambal oelek Salt & pipar eftir smekk


Aðferð

  1. Byrjið á því að sjóða fusillini eftir leiðbeiningum, sigtið og kælið.

  2. Skerið maískornin af maískólfunum.

  3. Steikið maísinn uppúr smjöri þar til hann brúnast aðeins og kryddið með salti, pipar og cayenne pipar.

  4. Smátt skerið tómata og avókadó.

  5. Stappið fetakubbinn gróflega.

  6. Hrærið saman í sósuna.

  7. Blandið saman fusillini, salati, maís, tómötum, kjúklingi, fetaosti, avókadó og sósu í stóra skál.

  8. Toppið með fetaosti og ferskum kóríander eða steinselju og njótið.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Innnes

Comments


bottom of page