KJÚKLINGA VEFJUR
- Jan 1
- 1 min read
Stökkur og safaríkur kjúklingur ofnbakaður með Tuc kexi og settur inn í tortillur með rjómaosti, rauðkáls hrásalati, tómötum og avókadó. Þessi máltíð klikkar ekki og er afar fljótleg!
Uppskrift að 4 vefjum 2 kjúklingabringur frá Rose poultry Salt & pipar ½ Tuc orginal kex pakkning ½ dl hveiti 1 egg PAM sprey 4 tortillur með grillrönd frá Mission Tómatur, skorinn í sneiðar Avókadó, skorið í sneiðar Philadelphia rjómaostur
Rauðkálshrásalat 5 dl rauðkál 4-5 msk majónes frá Heinz 1-2 tsk Tabasco sriracha sósa
Aðferð
Skerið kjúklingabringurnar í tvennt langsum þannig að úr verða tvær þunnar sneiðar og kryddið þær með salti og pipar.
Myljið Tuc kex í matvinnsluvél eða með því að setja í poka og renna kökukefli yfir.
Veltið þeim upp úr hveitinu, egginu og síðan Tuc kex mulningnum.
Spreyið eldfast form með Pam og leggið kjúklinginn í það. Spreyið með Pam yfir hann og bakið í 35-40 mínútur við 190°C eða þar til kjúklingurinn er orðinn gylltur.
Hitið tortillurnar og smyrjið þær með rjómaosti, dreifið rauðkálshrásalati, kjúklingnum, tómatsneiðum og avókadósneiðum. Gott að dreifa öllu á annan endann á tortillunni, brjóta hana saman eins og umslag og rúlla henni upp.






Comments