OFNBÖKUÐ PÖNNUKAKA (DUTCH BABY PANCAKE)
- Feb 10
- 1 min read
Ofnbökuð pönnukaka eða Dutch Baby Pancake með nóg af berujum er fullkomið fyrir helgarbrönsinn þegar ykkur langar í eitthvað extra gott. Stór mjúk pönnukaka sem er létt og góð þegar hún lyftist í ofninum. Berið fram með ferskum Driscoll’s berjum, smjöri, flórsykri og sírópi. Auðvelt og fljótlegt að framkvæma. Deigið blandast á nokkrum mínútum og restin sér um sig!

6 stór egg 2,4 dl hveiti 2,4 dl nýmjólk 25 g sykur (2 msk) 2 tsk vanilludropar
¼ tsk salt
60 g smjör
Berið fram með:
Ferskum Driscoll’s berjum Sírópi Smjör Flórsykur
Aðferð:
Hitið ofninn í 200°C og setjið 30 cm steypujárnspönnu (eða aðra ofnþolna pönnu) í miðju ofnsins og hitið hana.
Setjið egg, hveiti, mjólk, sykur, vanilludropa og salt í blandara og blandið þar til deigið er slétt, í um 1–2 mínútur. Þið getið líka sett allt í stóra skál og þeytt saman með písk í 4–5 mínútur þar til deigið er kekkjalaust.
Takið pönnuna varlega út úr ofninum, bætið smjörinu (skorið í bita) út á hana og komið henni strax aftur inn í ofninn þar til smjörið er bráðið og freyðir.
Hellið deiginu varlega á heita pönnuna og bakið í 20–25 mínútur eða þar til pönnukakan er gullinbrún og hefur lyft sér vel.
Skerið pönnukökuna í sneiðar eftir smekk og berið fram með berjum, flórsykri og sírópi.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes







Comments