QUESADILLAS MEÐ RISARÆKJUM
- Jan 2
- 1 min read
Quesadillas fylltar með risarækjum, Philadelphia rjómaosti, kokteiltómötum og blaðlauk. Toppa þær svo með majónesi, Tabasco Sriracha sósu og avókadó. Mjög bragðgóður og einfaldur réttur sem klikkar ekki.
Tvær quesadillas 4 Mission hveiti tortillur 300 g Sælkerafiskur stórar tígrisrækjur 1-2 msk Caj P grillolía með hvítlauki Salt og pipar Chili duft Filippo berio ólífuolía Philadelphia rjómaostur 12-15 litlir tómatar, smátt skornir 2 msk blaðlaukur, smátt skorinn 2 lítil avókadó ½ límóna Ferskt kóríander
Heinz majónes í túpu Tabasco Sriracha sósa
Aðferð
Veltið rækjunum upp úr grillolíunni og kryddið með salti, pipar og chili dufti.
Steikið rækjurnar upp úr ólífuolíu þar til þær eru orðnar bleikar og steiktar í gegn, það tekur 2-3 mínútur.
Smyrjið tortillurnar með rjómaosti og dreifið blaðlauki, tómötum og tígrisrækjum yfir helminginn.
Lokið tortillunum og penslið með ólífuolíu. Bakið í ofni í 5-7 mínútur við 190°C.
Stappið avókadó og blandið saman við safa úr límónu, salti og pipar.
Skerið quesadillas í sneiðar og berið fram með majónesi, sriracha sósu og fersku kóríander eftir smekk.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes



Comments