top of page
Search


KLASSÍSKT SESARSALAT
Ég elska gott salat og mér finnst sesarsalat alveg sérstaklega gómsætt. Hér er uppskrift að afar góðu sesarsalati. Uppskriftin er einföld og inniheldur romain salat, kjúkling í hvítlauks BBQ Caj olíu, heimagerða súrdeigsbrauðteninga, sesarsósu og parmesan ost. Það er einnig gott að bæta við tómötum, ólífum og jafnvel avókadó. Öll hráefnin vinna svo vel saman, krönsí, bragðgott og löðrandi í parmesan osti. Mér finnst toppurinn að bera salatið fram með góðu rósavíni og ekki ske


DÁSAMLEGT HUMARPASTA
Afar ljúffengt og einfalt humarpasta sem leikur við bragðlaukana. Ég útbjó uppskriftina í samstarfi við Grím kokk en ég notaði tilbúnu humarsúpuna frá þeim í sósuna. Það er algjör snilld og sósan verður extra bragðgóð og djúsí. Þetta sló í gegn hjá okkur á heimilinu og verður pottþétt útbúið aftur. Ásamt humarsúpunni þá setti ég fettuccine, skelflettan humar, skarlottulauk, hvítlauk, hvítvín, rjóma, parmesan ost, steinselju og toppaði með chili flögum. Nammi! Fyrir fjóra 1 st


ÓMÓTSTÆÐILEGIR TORTILLU ÞRÍHYRNINGAR
Ljúffengar og djúsí fylltar tortillur fylltar með rjómaosti (að sjálfsögðu Philadelphia), cheddar osti, kjúklingi, tómötum og laukhring. Ég loka þeim þannig að þær mynda þríhyrning sem auðvelt er að borða með höndunum og dýfa í sósur. Snilldar uppskrift sem hentar vel sem kvöldmatur eða í partýin sem eru framundan. Laukhringirnir setja punktinn yfir i-ið og gera þetta extra djúsí. 2 kjúklingabringur frá Rose Poultry 1-2 msk ólífuolía Krydd: ½ tsk laukduft, ½ tsk hvítlauksduf


PENNE PASTA MEÐ SALAMI, TÓMÖTUM & BURRATA
Hvað er betra en djúsí og ljúffengt pasta á svona dögum? Penne pasta með rjómaosti, hvítlauk, chili, ítölsku salami, ferskum tómötum, ferskri basilíku og burrata osti. Tekur enga stund að skella í þennan rétt. Sjóða pasta og græja sósuna á meðan. Blandar öllu saman og voila! Mæli með að bera fram með léttu og ljúffengu rauðvíni og nýbökuðu hvítlauksbrauði. Fyrir 3-4 300 g De Cecco penne pasta 2 msk ólífuolía 3 hvítlauksrif, kramin eða rifin 1 chili Salt og pipar 300 g kokteil


FYLLTAR KJÚKLINGABRINGUR MEÐ RJÓMAOSTI & JALAPENO
Kjúklingabringur fylltar með rjómaosti, cheddar osti, fersku jalapeno og Jalapeno Tabasco sósu. Fyrir þá sem vilja ekki hafa þetta of sterkt þá er gott að minnka aðeins magnið af jalapeno og Tabasco sósunni. Mér finnst samt alveg ótrúlega gott þegar þetta rífur aðeins í og næst ætla ég að bæta aðeins meiri jalapeno í fyllinguna. Fyrir 4 4 afþýddar kjúklingabringur frá Rose Poultry (1 poki) 200 g Light Philadelphia rjómaostur (1 pkn) 1 msk ferskur jalapeno, smátt skorinn 1 dl


RAUÐSPRETTA Í DÁSAMLEGRI SÓSU
Það er fátt betra en ljúffengur fiskréttur og hvað þá þegar hann inniheldur rauðsprettu. Mér finnst rauðspretta svo bragðgóð og er hún í miklu uppáhaldi. Rauðspretta í hvítlauksrjómasósu með hvítvíni, sítrónu, kapers og ólífum. Gott að bera réttinn fram með smátt skornum kartöflum með parmigiano reggiano, ferskum aspas og góðu hvítvíni. Fyrir 2 600 g rauðspretta (500 g roðflett. Ég læt roðfletta hana í fiskibúðinni) 1 lítið egg 1 dl hveiti Krydd: Salt, pipar & laukduft eftir


RISOTTO MEÐ TÓMÖTUM & BURRATA OSTI
Sumarlegt, létt og ljúffengt risotto með ferskum tómötum, kastaníusveppum, basilku og burrata osti. Óvá hvað þetta er góð samsetning. Ég elda grjónin með tómötunum og sveppunum sem gerir réttinn extra ljúffengan. Þið verðið hreinlega að prófa! Svo klikkar ekki að bera réttinn fram með ísköldu rósavíni og nýbökuðu hvítlauksbrauði. Fyrir 3-4 2 msk smjör 3-4 skarlottulaukar 3 hvítlauksrif 250 g kastaníusveppir 200-300 g litlir tómatar (kokteiltómatar eða marzanatómatar) 4 dl ar


SPAGHETTI CARBONARA
Hvernig væri að skella í dýrindis spaghetti carbonara sem tekur enga stund að útbúa og er dásamlega gott? Þessi uppskrift inniheldur fá en góð hráefni. Klassískur réttur sem klikkar ekki og passar sérlega vel með ísköldu hvítvíni, salati og hvítlauksbrauði. Uppskrift fyrir fjóra 350 g spaghetti frá De Cecco 1 msk ólífuolía 270 g beikonsneiðar 2 msk smjör 2 hvítlauksrif 4 eggjarauður 2 dl rifinn parmesan ostur + meira til að toppa með1/2-1 dl steinselja, smátt skorinSalt og pi


BYGG SALAT MEÐ EDAMAME BAUNUM
Dásamlega gott, einfalt og hollt salat sem er gott í hádegismat eða kvöldmat. Salatið inniheldur bygg, salat, edamame baunir, ljúffenga dressingu, avókadó, pistasíur og fleira góðgæti. Það er frábært að taka það með í vinnuna og borða í hádeginu. Fyrir einn 2 dl eldað bygg 2 dl smátt skorið salat 1 dl frosnar edamame baunir Krydd: Cayenne pipar, hvítlauksduft, salt og pipar 1-2 msk smátt skorinn vorlaukur 1 dl gúrka, smátt skorin 1/2 dl tómatar, smátt skornir 1/2 avókadó, smá


EXTRA STÖKKT TACO MEÐ KJÚKLINGABAUNUM
Tacos með stökkum kjúklingabaunum, heimagerðu tómatsalsa, cheddar osti, salati, guacamole og fetaosti. Algjört nammi! Það er eitthvað svo ótrúlega gott að setja harðar tacoskeljar inn í mjúkar tortillur með sýrðum rjóma og ost á milli. Mæli með að útbúa ofnbakað heimagert tómatsalsa sem tekur enga stund að útbúa og alveg þess virði. Ég notaði Biona kjúklingabaunir sem eru lífrænt ræktaðar og mjög góðar. Fyrir fjóra 1 Biona organic chickpeas Krydd: ¼ tsk reykt paprika, ¼ tsk


LÚXUS GRILLAÐAR BAGUETTE SAMLOKUR
Djúsí, mjög einföld og ótrúlega góð samloka. Hún inniheldur hamborgarasósuna mína frá Heinz, skinku, salat, tómata, jalapeno ásamt cheddar-og havarti ost. Nammii! Mæli með að bera fram með óáfengum Corona bjór, hann er virkilega góður. Fyrir tvo 1 súrdeigs baguette (keypti í Krónunni) Smjör 2 sneiðar kjúklingaskinka (ekki reykt) 4 sneiðar silkiskorin skinka 4 sneiðar havarti ostur 2 sneiðar mjúkur cheddar ostur í sneiðum 1-2 msk jalapeno úr krukku, smátt skorinn Salat eftir s


PIZZA MEÐ BUFFALO KJÚKLINGI & RJÓMAOSTI
Ég hef nokkrum sinnum útbúið þessa og nú er komið að því að deila henni með ykkur. Pizza með buffalo kjúklingi og rjómaosti. Lykilatriðið er að nota Philadelphia rjómaost í staðinn fyrir pizzasósu en það gerir pizzuna einstaklegs bragðgóða og djúsí. Ég læt uppskrift að góðu pizzadeigi fylgja með en ef að þið viljið hafa hana extra fljótlega þá er bara næs að kaupa tilbúna deig kúlu í næstu verslun. Ferskt salat og ískaldur bjór fer afar vel með þessari pizzu. Uppskrift gerir


TACO MEÐ ANDACONFIT
Tacos fylltar með rifnu andarconfit, rauðkálshrásalati með smá appelsínu twisti, granatepla salsa og fetaosti. Smá jólalegar og bragðgóðar og einfaldar að útbúa. Passar virkilega vel með ísköldum Corona bjór og mun slá gegn í matarboðunum á aðventunni eða bara hvenær sem er Fyrir tvo-þrjá (mæli með þremur taco á mann) 2 andaconfit frá Valette 6-8 litlar tortillur Ólífuolía til steikingar Rauðkálshrásalat 5 dl rauðkál, smátt skorið 1 dl majónes frá Heinz 1dl sýrður rjómi 3 msk


QUESADILLAS MEÐ RISARÆKJUM
Quesadillas fylltar með risarækjum, Philadelphia rjómaosti, kokteiltómötum og blaðlauk. Toppa þær svo með majónesi, Tabasco Sriracha sósu og avókadó. Mjög bragðgóður og einfaldur réttur sem klikkar ekki. Tvær quesadillas 4 Mission hveiti tortillur 300 g Sælkerafiskur stórar tígrisrækjur 1-2 msk Caj P grillolía með hvítlauki Salt og pipar Chili duft Filippo berio ólífuolía Philadelphia rjómaostur 12-15 litlir tómatar, smátt skornir 2 msk blaðlaukur, smátt skorinn 2 lítil avóka


LJÚFFENGAR ANDABRINGUR & MEÐLÆTI
Franskar andabringur með steiktum kartöflum, kantarella sveppasósu og rósakáli með rjóma og parmesan er sannkallaður hátíðarmatur. Gott er að bera öndina fram með t.d. waldorfsalati yfir hátíðarnar og það er algjört „must“ að steikja kartöflurnar upp úr andafitunni. Rósakál með rjóma og parmesan setur punktinn yfir i-ið og allt rennur þetta svo ljúflega niður með góðu rauðvíni. Uppskrift fyrir 2-3 Andabringur 1 frosin andabringa frá Vallette Salt og pipar Ferskt timían Ferskt


DJÚSÍ & LJÚFFENGAR TÍGRISRÆKJULOKUR
Þessi réttur er bæði einfaldur og bragðgóður. Pylsubrauð eru orðin vinsæll valkostur fyrir ýmsa rétti og það er líka svo gaman að prófa eitthvað nýtt. En mér finnst algjört must að nota brioche brauð í uppskriftina. Þessi blanda er alveg sérlega góð og þið sem eruð tígrisrækju unnendur þá mæli ég með að eiga þær alltaf til í frystinum. Það er svo gott að grípa í þær og nota í allskyns rétti. Fyrir tvo 4 brioche pylsubrauð 12 tígrisrækjur Panko rasp Hveiti 1 egg Sítrónupipar


TACOSKÁLAR Á 15 MÍNÚTUM
Einn af mínum uppáhalds hversdagsréttum sem klikkar aldrei! Tekur 15 mínútur að elda og krakkarnir elska þetta. Ég set oft kínóa, baunir eða nautahakk í réttinn sem mér finnst svo frábært. Djúsí og krönsí grænmetisréttur eða með nautahakki sem ég mæli með að þið prófið. Mæli með þremur tacoskálum á mann 10 stökkar tacoskálar Ólífuolía 1 pkn tilbúið kínóa frá Quinola, baunir eða nautahakk 1 krukka salsasósa Krydd: Laukduft, hvítlauksduft, cumin, salt og pipar Rifinn cheddar os


KLASSÍSKT LASAGNA ALA HILDUR
Klassískt lasagna er alltaf gott og þessi uppskrift klikkar ekki. Mér finnst best að útbúa alfredo sósu til að setja á milli og ricotta ost. Það þarf að hafa aðeins meira fyrir því að útbúa sósuna sjálfur en vá hvað lasagnað verður extra bragðgott. Svo einfalt og alveg þess virði. Börnin mín elska þetta lasagna og borða alltaf mjög vel þegar það er á boðstólum. Fullkomið á köldum haustdegi og vetrardegi með góðu rauðvíni. 600 g nautahakk 400 g tómatar í dós, hakkaðir 3 msk tó


CHEDDAR NACHOS MEÐ KJÚLKING
Okey nammi! Þetta verðið þið bara að prófa. Ég notaði vinsæla Finn Crisp snakkið með cheddar bragði sem er hollari kostur og gerir réttinn svo bragðgóðan. Nóg af havarti- og cheddar osti ásamt kjúkingi og svörtum baunum með chipotle, tómötum, jalapeno sýrðum rjóma og avókadó. Ótrúlega góð blanda sem klikkar ekki. 1 pkn Finn Crisp snakk með cheddar 4 dl kjúklingur, rifinn eða smátt skorinn (ég keypti tilbúinn kjúkling með salt og pipar) 2 dl svartar baunir 3 msk chipotle mauk


TAGLIATELLE BOLOGNESE MEÐ BURRATA
Klassískt bolognese er alltaf gott og líklegt er að flestir lumi á góðri uppskrift. En mig langar engu að síður að deila minni útgáfu sem klikkar ekki. Ég set þetta klassíska í réttinn, nautahakk, lauk, gulrætur, sellerí og hvítlauk ásamt ljúffengri sósu frá Heinz með tómötum og chili. Leyfi þessu að sjálfsögðu að malla vel og lengi. Toppa svo réttinn með burrata osti, basilíku og parmesan sem gerir réttinn svo góðan. Mæli með að þið prófið þetta. De Cecco tagliatelle eftir s
bottom of page