top of page
Search


JÓLA MÍMÓSA
Jólaleg mímósa en í henni er ljúffengt rose kampavín og trönuberjasafi. Afar góð blanda sem passar vel með brönsinum á aðventunni eða bara til að njóta hvenær sem er. Ég þek brúnirnar með kanil og hrásykri til að fá extra jólalegan drykk. Algjört nammi. Fallegu glösin eru úr Heimahúsinu og fást hér. Einn drykkur 1 dl Nicolas Feuillatte Rose Champagne 1 dl trönuberjasafi 2 msk hrásykur 1 tsk kanill Aðferð Byrjið á því að blanda saman kanil og hrásykri og dreifið á disk. Dýfið


STOKKRÓSAR MARGARITA
Ótrúlega ljúffengur kokteill sem er sætur, saltur og súr. Dásamleg blanda! Margarita er klassískur og vel þekktur kokteill frá Mexíkó sem samanstendur af tequila, Cointreau, safa úr lime og klökum. Stokkrósar sírópið gerir drykkinn einstaklega bragðgóðan og ljúfan. Svo finnst mér algjört „must“ að setja salt á glasbrúnina. Það setur punktinn yfir-ið. En auðvitað má alveg sleppa því. Þessi drykkur er fullkominn með tacoveislunni eða til að njóta um helgina. Skál! Fyrir einn 6


JARÐARBERJABOLLA FYRIR BOLLUDAGINN
Tilvalið að skála í jarðarberjabollu fyrir bolludaginn. Þessi drykkur er afar bragðgóður og ferskur með fullt af ferskum berjum. Ég bar drykkinn fram í fallegri könnu en einnig er sniðugt að setja hann í stóra skál með ausu. Frábært partý drykkur sem ég mæli mikið með. 1 dl Cointreau 1,8 dl vodka 2 dl sykursíróp 1 dl safi úr sítrónu 5 dl Pizzolato Pinot Grigio, freyðivín 2 dl sódavatn 200 g jarðarber 50 g hindber 50 g brómber Klakar Jarðarberja sykursíróp 4 dl smátt skorin ja


ÍSKAFFI MEÐ KÓKOSMJÓLK
Sumarlegt og ljúffengt ískaffi. Hann inniheldur kaffi, sykurlaust karamellusíróp, kókosmjólk og nóg af klökum. Það er algjör snilld að nota kókosmjólkina í drykkinn, hún gefur honum svo ljúft og gott bragð. Ég nota svo flóarann frá Sjöstrand til að kaldflóa mjólkina sem ég mæli með að þið prófið. Það er mjög gott og það kemur skemmtileg áferð á mjólkina en annars má alveg sleppa því að flóa mjólkina. Mæli með að þið prófið þennan drykk. Uppskrift gerir einn drykk 1-2 espresso


AFFOGATO
Affogato eftirréttakokteill er ómótstæðilega góður og ef þú ert kaffiunnandi þá áttu líklegast eftir að elska hann. Affogato er vinsæll ítalskur eftirréttur sem inniheldur espresso skot og ís. Hér kemur hann í fullorðinsbúningi og inniheldur kaffilíkjör og vodka og er toppaður með rifnu súkkulaði. Fyrir einn 30 ml espresso frá Sjöstrand (1 espresso skot) 5 cl kaffilíkjör 2 cl vodka 1 kúla vanilluís Rifið dökkt súkkulaði Aðferð Byrjið á því að útbúa eitt espresso skot í glas.


SÚKKULAÐI ESPRESSO MARTINI
Gómsætur espresso martini með súkkulaði líkjöri sem gerir drykkinn svo ótrúlega bragðgóðan! Einn kokteill 30 cl Tobaco gold súkkulaði líkjör 30 cl vodka 30 cl espresso kaffi 15 cl sykursíróp Klakar Aðferð : Hristið saman Tobaco gold, vodka, espresso kaffi, sykursírópi og klaka í kokteilahristara í 15 – 20 sekúndur. Hellið í fallegt glas í gegnum sigti og njótið! Sykursíróp Blandið saman 200 ml af vatni og 200 g af sykri í pott. Bræðið sykurinn á vægum hita og hrærið þar til h


SVALANDI ESPRESSO TÓNIK
Hafið þið prófað kaffi með tónik og lime? Þetta er svo ljúffeng og einföld blanda sem kemur mikið á óvart. Ég útbjó eina slíka uppskrift í samstarfi við Sjöstrand sem ég mæli með að þið prófið. Sumarlegur og afar frískandi drykkur. Einn drykkur 1-2 espresso skot Sjöstrand nr.1 ½ dl tónik vatn 4-6 klakar 1 limebátur Aðferð Setjið klaka í glas og hellið tóniki ofan í. Útbúið 1-2 skot af espresso og hellið út í tónik vatnið. Kreystið safa úr limebáti. Skreytið með lime sneið og


HEITUR HUNANGS- & HAFRA KOKTEILL
Hvað er betra en ljúffengur og heitur kokteill sem iljar manni kuldanum? Heit haframjólk með hunangi og kryddblöndu, viskí og Cointreau gerir þennan kokteil svo bragðgóðan og jólalegan. Smá appelsínukeimur, kryddaður og sætur kokteill. Mæli með að nota ikaffe haframjólkina frá Oatly í drykkinn. Hún freyðir svo vel og er bragðgóð. Ég nota mjólkurflóara til að flóa mjólkina en það er ekkert mál að flóa mjólkina í potti. Ekta drykkur til að útbúa þegar þið fáið gesti í heimsókn


ROKU ROSÉ
Bragðgóður kokteill með gini, prosecco rosé, ylliblómasírópi (e. elderflower syrup), engifer og lime. Mér finnst afskaplega gott að setja prosecco í kokteila og hvað þá rosé – en það gerir kokteilinn einstaklega ljúffengan. Engifer og ylliblómasíróp passa líka mjög vel í drykkinn og setja punktinn yfir i-ið. Ég er viss um að það er líka gott að setja venjulegt sykursíróp ef að þið eigið ekki ylliblómasíróp. Mæli mikið með að skála í þessum um helgina ;) 1 kokteill 3 cl Roku g


JACK & ROSE
Dásamlega ljúffengur og ferskur kokteill. Það þarf alls ekki að vera flókið til að vera gott en hann inniheldur aðeins þrjú hráefni. Cointreau, greipsafa, rose lemonade ásamt fullt af klökum. Ég smakkaði þennan kokteil í vínsmökkun fyrir nokkru síðan og ég varð að leika hann eftir. Þið verðið að prófa að skella í þennan um helgina ef að þið eruð í stuði. Fyrir einn 4 cl Cointreau 3 cl safi úr fersku greip 1,5 dl rose lemonade Klakar Greip sneið Aðferð Kreistið safa úr fersku


APPELSÍNU FLOAT
Gómsætur eftirréttar kokteill með Cointreau, appelsínugosi og vanilluís. Vá vá vá hvað hann er ljúffengur! Vanilluísnn verður flöffý og freiðandi og er svo góður með appelsínubragðinu. Kokteillinn rennur ljúflega niður – algjört nammi. Mæli með þessum í sólinni eða nota hann sem einfaldan eftirrétt. Fyrir einn 5 cl Cointreau 2 dl appelsínugos (t.d. Fanta eða Appelsín) 2-3 kúlur vanilluís Aðferð Hellið appelsínugosi og Cointreau í glas og hrærið varlega saman. Setjið 2-3 kúlur


BASIL GIMLET
Basil gimlet er svo ferskur og góður kokteill. En svo skemmir ekki hvað það er einfalt að útbúa hann. Hann hefur lengi verið vinsæll á Íslandi og núna loksins ætla ég að deila með ykkur uppskrift. Þetta er klassískur gimlet kokteill sem inniheldur gin, lime safa, sykursíróp og svo punkturinn yfir i-ið er fersk basilika. Ef að þið hafið ekki prófað hann þá mæli ég mikið með að þið gerið það. 1 drykkur 6 basiliku laufblöð 6 cl Roku gin 3 cl sykursíróp 3 cl safi úr lime Klakar A


ÁSTARALDIN & VANILLU GIN
Ljúffengur kokteill með ástaraldini, sítrónu, sykursírópi með vanillu, gini og eggjahvítu. Þessi kokteill er algjört nammi en samt svo frískandi. Ég er alltaf svo hrifin af kokteilum sem innihalda eggjahvítu og sítrónu. Áferðin á drykknum verður svo góð og toppurinn yfir i-ið er froðan. 1 kokteill 5 cl Roku gin 3 cl safi úr sítrónu 3 cl sykursíróp með vanillu 1 ástaraldin 1 eggjahvíta Klakar Sykursíróp með vanillu 100 g sykur 1 dl vatn 2 tsk vanillu extract Aðferð Hellið gini


HINDBERJA MOJITO
Þegar ég hugsa um sumarlegan kokteil þá kemur mojito strax upp í hugann þótt að hann passar allan ársins hring! Hér kemur uppskrift að hindberja mojito sem afar bragðgóður. Hindberin gera drykkinn svo ferskan og bragðgóðan. Mæli með að þið prófið! Fyrir einn 6-8 hindber 10-12 fersk myntu laufblöð 6 cl Brugal romm 2 cl safi úr lime 3 cl sykursíróp Klakar 1-2 dl sódavatn Sykursíróp 200 g sykur 200 ml vatn Aðferð Setjið hindber og myntu laufblöð í hátt glas og merjið. Hellið ro


FRENCH 75
Kokteill sem er afar ljúffengur og frískandi. Hann inniheldur dásamlega blöndu af freyðivíni, gini, sykursírópi og sítrónusafa. Það er ekkert svo langt síðan að ég uppgötvaði þennan drykk en ein yndisleg frænka sagði mér frá honum og hann er strax orðinn einn af uppáhalds. Hvernig væri að skála í þessum um helgina? 1 kokteill 3 cl Roku gin 2 cl sykursíróp 2 cl sítrónusafi Klakar 1,5 dl Lamberti Prosecco Sykursíróp 200 g sykur 200 ml vatn Aðferð Hristið saman gin, sykursíróp,


COINTREAU MIMOSA
Mimosa með prosecco, appelsínusafa og Cointreau. Einfalt og gott. Passar vel að bjóða uppá með brönsinum þegar þú vilt bjóða uppá aðeins öðruvísi mimosa sem bragðast alveg ótrúlega vel! 1 kokteill 75 ml appelsínusafi 75 ml Lamberti Prosecco 1 cl Cointreu Appelsínusneið til að skreyta Aðferð Hellið appelsínusafa í fallegt glas. Því næst hellið Prosecco og Cointreau. Skreytið með appelsínusneið og njótið. Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️ // HILDUR RUT INSTAGRAM: @hildurrutingi


WHISKEY SOUR
Klassískur whiskey sour klikkar ekki en hér kemur uppskriftin sem mér finnst best. Hann er í uppáhaldi hjá mér! Akkúrat rétt jafnvægi á milli sítrónu, sætu og viskís en svo er froðan algjört must! 1 kokteill 6 cl Jeam Beam Black viskí Nokkrir dropar angostura bitter (má sleppa) 3 cl safi úr sítrónu 3 cl sykursíróp 1 eggjahvíta Klakar Appelsínusneið Sykursíróp 200 g sykur 200 ml vatn Aðferð Hellið viskí, safa úr sítrónu, sykursírópi og eggjahvítu í kokteilahristara og hristið


BLÁBERJA & RÓSMARÍN MOSCOW MULE
Moscow mule með bláberja og rósmarín twisti sem gerir kokteilinn einstaklega ljúfan. Drykkurinn inniheldur vodka, bláber, engiferbjór, rósmarín og kanil. Frískandi og ljúfur drykkur sem er tilvalið að njóta um helgina. Fyrir einn 4 cl vodka 2 cl bláberja Mickey Finn ½ dl fersk bláber 2 dl engiferbjór Klakar 1 rósmarín stöngull 1 kanilstöng Aðferð Hellið vodka, mickey finns og bláberjum í glas. Merjið þetta vel saman með kokteilamerjara. Hellið engiferbjór saman við og fyllið


JÓLALEGT EGGJAPÚNS
Í aðdraganda jólanna er svo gaman að prófa eitthvað nýtt og jólalegt. Ég gerði loksins eggjapúns (e. eggnog) og vá hvað þetta er góður og hátíðlegur drykkur! Eggjapúns er klassísk blanda af eggjum, sykri, rjóma, mjólk og viskí, krydduð með múskati og kanil. Það er líka svo þægilegt að gera hann í stærra magni og geyma í ísskáp – svo er bara að hella í glas þegar ykkur hentar. Uppskrift gerir 4-6 drykki 4 egg 400 ml rjómi 300 ml mjólk 90 g sykur + 1 msk sykur 120 ml Maker‘s Ma


ESPRESSO MARGARITA
Óvá hvað þessi drykkur er ljúffengur! Tequila, Cointreau, kaffisíróp og lime er dásamleg og frískandi blanda sem kemur á óvart. Mæli með að skála í þessum um helgina. Fyrir einn 3 cl Tequila blanco 3 cl Cointreau 3 cl kaffisíróp 2 cl safi úr lime Kaffisíróp 2 dl kaffi 2 dl sykur Aðferð Hristið saman tequila, Cointreau, kaffi sírópi, safa úr lime og klaka í kokteilahristara í 15 – 20 sekúndur. Hellið í fallegt glas í gegnum sigti og njótið. Kaffisíróp Blandið saman kaffi og s
bottom of page