KJÚKLINGUR Í GRÆNU KARRÝ
- Jan 1
- 1 min read
Dásamlega bragðgóður og einfaldur réttur sem rífur aðeins í. Kjúklingur, grænmeti, grænt karrý og kókosmjólk frá Blue dragon sett saman í pott eða á pönnu og borið fram með hrísgrjónum. Bragðgóður og hollur réttur sem passar sérlega vel með góðu rauðvíni. Ég setti vorlauk, sykurbaunir, brokkólí og baby corn en ég mæli með að nota það grænmeti sem ykkur langar í. Stundum er líka þægilegt að kaupa frosið wok grænmeti.

500-600 g úrbeinuð kjúklingalæri Salt og pipar Ólífuolía til steikingar 3-4 msk grænt karrý frá Blue dragon 1 msk rifinn engifer 2 hvítlauksrif, rifin eða kramin 6 vorlaukar, smátt skornir 3 dl sykurbaunir 4-5 dl brokkólí 12-14 stk baby corn (lítill maís) 1 dós kókosmjólk frá Blue dragon
Toppa með: Vorlauk Kóríander Chili Radísuspírum (eða öðrum spírum)
Bera fram með: Hrísgrjónum frá Tilda Basmati
Aðferð
Byrjið á því að skera kjúklinginn í bita og steikja í potti eða á pönnu upp úr ólífuolíu. Kryddið með salti og pipar eftir smekk.
Skerið vorlauk smátt. Skerið sykurbaunir, brokkólí og baby corn í minni bita.
Steikjið vorlauk, engifer og hvítlauk upp úr ólífuolíu.
Blandið grænu karrý saman við.
Bætið grænmetinu saman við og hrærið vel saman. Saltið og piprið eftir smekk.
Blandið kókosmjólkinni saman við og leyfið að malla í 5-10 mínútur.
Toppið með vorlauk, radísuspírum, chili sneiðum og kóríander.
Berið fram með hrísgrjónum og njótið.





Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes









Comments