top of page
Search


LITLAR OSTAFYLLTAR BRAUÐBOLLUR
Gómsætar fylltar brauðbollur með rjómaosti og sesamblöndu. Fullkomið með ísköldum bjór sem snakk eða forréttur. Sniðugt að bera fram í þeim veislum og matarboðum sem framundan eru. Svo finnst mér þær svo fallegar fyrir augað. Philadelphia rjómaostur með graslauk, cheddar ostur, vorlaukur og sesamblanda með smjördeigi er frábær blanda. Namm! Uppskrift að 36 litlum brauðbollum 430 g smjördeig, frosið (6 plötur) 5-6 dl rifinn cheddar ostur 1 pkn Philadelphia rjómaostur með grasl


DÁSAMLEGUR BRUSCHETTA BAKKI
Hvað er betra en dásamlegur bakki stútfullur af grilluðum bruchettum ásamt allskonar góðgæti og ískalt Prosecco rosé með? Bruschettur með þeyttum fetaosti, jarðaberjum og fíkjum og bruschettur með ferskum mozzarella, tómötum, basiliku og hráskinku. Fullkomin blanda og gaman að raða þessu fallega upp á bakka. Það er líka svo gaman að skála í fallegum glösum en þessi eru úr Heimahúsinu og fást hér. 1-2 bruschetta brauð (ég keypti súrdeigs) ½ dl ólífuolía 2 hvítlauksrif, rifin e


EINFALT & GOTT HRÖKKBRAUÐ
Einfalt, gott og hollt hrökkbrauð sem allir geta gert heima. Mjög gott sem millimál með hummus og grænmeti eða öðru góðu áleggi. Ég elska að eiga þetta til í krukku heima. Mæli með! 1,5 dl Rapunzel sesamfræ 1,5 dl Rapunzel graskersfræ 1 dl Rapunzel sólblómafræ 1 dl Rapunzel gróft haframjöl 3,5 dl gróft spelt 1 ¼ dl Filippo Berio ólífuolía 2 dl vatn Saltflögur eftir smekk Aðferð Blandið öllum hráefnunum saman nema saltinu. Dreifið blöndunni á bökunarpappír og fletjið þunnt út


RISARÆKJUKOKTEILL MEÐ AVÓKADÓ
Þessi útgáfa af klassískum rækjukokteil er aðeins öðruvísi og slær alltaf í gegn. Ljúffengur réttur sem hentar sérlega vel sem forréttur um jólin og áramótin. Þetta hefur verið fastur réttur á mínum matseðli um áramót og er alltaf jafn gott! Avókadó og risarækjur með chili og hvítlauk, þessi hráefni smellpassa saman og ekki skemmir að þetta er bráðhollt. Hvítvín passar svo sérlega vel með. Mæli mikið með! Uppskrift fyrir 4 2 avókadó 12 stórar tígrisrækjur, óeldaðar 1/2 chili1


RISARÆKJUR Í KRÖNSI MEÐ AVÓKADÓ DILL SÓSU
Uppskrift að afar góðum risarækjum í snakk krönsi sem eru bornar fram með avókadó sósu með dilli og sýrðum rjóma. Tilvalið sem aðeins öðruvísi forréttur eða léttur réttur yfir hátíðarnar. Ég þakti rækjurnar með hummus snakki frá Eat real með dill bragði sem passar sérlega vel með risarækjunum. Snakkið er gert úr kjúklingabaunum og er einnig ótrúlega gott eitt og sér. Það er vegan, glúten frítt og 40% fituminna en venjulegt snakk. 600 g stórar tígrisrækjur frá Sælkerafiski 8 d


TORTILLASKÁLAR MEÐ RISARÆKJUM
Hér kemur mitt fyrsta uppskriftarmyndband sem ég tók þátt í að gera í samstarfi við Gerum daginn girnilegan. Ljúffengar litlar tortillaskálar fylltar með tígrisrækjum, avókadó salsa, rjómaosti, cheddarosti og toppaðar með kóríander. Þetta er svo gott og einfalt í bígerð. Tilvalið sem forréttur eða bara einfaldlega sem aðalréttur. Mæli mikið með! Uppskrift að 12 litlum tortillaskálum 300 g hráar tígrisrækjur frá Sælkerafiski (1 pakkning) 1-2 hvítlauksrif 1 smátt skorið chili


DJÚSÍ OSTABRAUÐSTANGIR
Ef að þið viljið gera eitthvað djúsi og súper gott þá eru þessar ostabrauðstangir algjörlega málið! Mæli með að borða þær volgar og rífa...


HAUSTLEGT HNETUMIX
Hollustu nammi sem er unaðslega gott, sykurlaust og krönsí. Pekanhnetur, möndlur, pistasíur og graskersfræ í pumpkin spice kryddblöndu og...


HEIT OSTAÍDÝFA MEÐ JALAPENO
Gómsæt ostaídýfa sem inniheldur Philadelphia rjómaost með graslauk, sýrðan rjóma, parmigiano reggiano, jalapeno og cheddar ost! Svakalega...


RISARÆKJUR MEÐ AVÓKADÓ, TÓMÖTUM & PARMESAN
Þetta er of auðvelt og of gott til að láta þetta framhjá sér fara. Bæði gott sem forréttur eða léttur kvöldmatur. Risarækjur, avókadó, tómatar og parmesan er ljúffeng blanda sem klikkar ekki. Ég elska að eiga til risarækur í frystinum til að grípa í og þá sérstaklega til að útbúa svona auðvelda og góða rétti. Uppskrift fyrir 2 400 g risarækjur, hráar 2 hvítlauksrif, kramin Chiliflögur, eftir smekk Salt og pipar Ólífuolía 2 avókadó 10 kokteiltómatar (eða 2-3 stærri tómatar) 3


FERSKIR MAÍSKÓLFAR MEÐ RJÓMAOSTABLÖNDU
Ljúffengir maískólfar sem eru í miklu uppáhaldi. Þeir eru smurðir með blöndu af majónesi, rjómaosti, cayenne pipar, kóríander og parmesan osti. Bragðgóð blanda sem passa vel við maískólfann. En vá hvað ég elska þegar ferskur maís er til í verslunum! Þá er þetta oft á boðstólum og sérstaklega gott með grillmatnum. Mæli með að þið prófið! Fyrir 2 2 ferskir maískólfar 1-2 msk smjör 2 msk Heinz majónes 2 msk Philadelpia rjómaostur Cayenne pipar eftir smekk Salt Ferskur parmesan o


JALAPENO- & CHEDDAROSTASTANGIR
Mjög einfaldar og ljúffengar ostastangir með cheddar osti og jalapeno sem rífur aðeins í. Í uppskriftinni eru einungis 4 innihaldsefni...


LJÚFFENGT CHEDDAR OSTASALAT
Þetta ostasalat er svo dásamlega ljúffengt. Einfalt að útbúa það og passar sérlega vel með kexi og hrökkbrauði. Svo er það er líka...


RÆKJUSALAT MEÐ RISARÆKJUM
Dásamlegt rækjusalat sem er aðeins öðruvísi en þetta klassíska. Það inniheldur risarækjur, egg, Heinz majónes, steinselju, salt og pipar. Það er skemmtileg tilbreyting að nota risarækjur en þær eru skornar smátt sem gerir áferðina svo góða. Mæli með að bera þetta fram á ristuðu súrdeigsbrauði eða öðru góðu brauði með avókadó og sítrónusafa. 350 g frosnar risarækjur, óeldaðar Ólífuolía 5 soðin egg 1/2 – 1 dl Heinz majónes (eða eftir smekk) Chili flögur, salt og pipar 1 msk f


LJÚFFENGT BRIOCHE BRAUÐ MEÐ ÞEYTTUM RICOTTA
Dúnmjúkt og bragðgott brioche brauð og þeyttur ricotta ostur með ofnbökuðum tómötum. Þegar ég fór til Berlínar um miðjan október þá fékk ég alveg dásamlegt brioche brauð með þeyttum osti. Ég hef ekki hætt að hugsa um þetta síðan og ég varð að prófa að útbúa svona sjálf. Ég leitað eftir góðri uppskrift og datt inn á þessa eftir einn af mínum uppáhalds matarbloggurum, Half baked Harvest. Þetta heppnaðist alveg ótrúlega vel og vá hvað ég mæli með að þið prófið. Þetta er smá tím


FYLLT AVÓKADÓ MEÐ EGGJUM
Þessi réttur er tilvalinn í helgarbrönsinn, einnig gott sem morgunmatur eða millimál. Einfalt og gott avókadó fyllt með eggjum, bakað í...


HOLLIR & EINFALDIR KÍNÓAKLATTAR
Hollir og ljúffengir klattar sem innihalda kínóa, hampfræ, spelt og cheddar ost. Ég nota kínóa mjög mikið í alls kyns rétti en það er...
bottom of page