ÍSTERTA MEÐ JARÐARBERJUM & DAIM
- Mar 31
- 1 min read
Þessi klassíska og ljúffenga Daim ísterta sem mamma gerir svo oft en í aðeins öðruvísi búning. Ég einfaldaði aðeins með því að kaupa tilbúinn ís. Marengsbotn með möndlum sem minnir á sörur, rjómaís, stökkt Daim og fersk jarðarber. Fullkomin terta til að gera fyrirfram og geyma í frysti.

Botn 3 eggjahvítur 150 g sykur 150 g saxaðar möndlur
Fylling 1 stórt box vanillu rjómaís (700 g) 3–4 Daim plötur 150 g Driscoll’s jarðarber
Til skrauts Jarðarber & saxað Daim
Aðferð
Hitið ofninn í 160°C.
Þeytið eggjahvíturnar og bætið sykrinum smátt og smátt út í. Þeytið þar til blandan er stíf og glansandi.
Blandið söxuðu möndlunum varlega saman við.
Setjið bökunarpappír í botninn á lausbotna formi og hellið blöndunni í formið.
Bakið í 1 klukkustund og látið botninn kólna alveg í forminu.
Takið ísinn úr frysti og látið hann mýkjast í 10–15 mínútur.
Saxið Daim frekar gróft.
Skerið jarðarber í bita og þerrið þau létt með eldhúspappír.
Blandið Daim og jarðarberjum varlega saman við ísinn. Ég nota hrærivélina á hægustu stillingunni.
Setjið blönduna yfir botninn í forminu og sléttið úr.
Setjið í frysti þar til tertan er orðin vel köld og föst. Mjög gott að gera hana deginum áður.
Takið úr frysti um 20 mínútum áður en hún er borin fram.
Skreytið með jarðarberjum og söxuðu Daim áður en þið berið fram.





Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes











Comments