top of page
Search


SÆTKARTÖFLU-& KJÚKLINGABORGARI
Sætar kartöflur og kjúklingur passa sérlega vel saman. Þessi réttur er bæði mjög bragðgóður og í hollari kantinum. Ég nota sætar kartöflur í staðinn fyrir brauð og fylli með kjúklingi, fetaosti, avókadó, salati, tómatsneiðum, spírum og ljúffengri sósu. Þetta er einfalt og þægilegt að útbúa og tekur um 30 mínútur. Það er þægilegt að undirbúa meðlætið á meðan kjúklingurinn og sætu kartöflurnar bakast í ofninum. Fyrir 2 1 stór sæt kartafla Ólífuolía 2 kjúklingabringur Salt og


SESARSALAT MEÐ AVÓKADÓSÓSU
Mánudagur og þá er tilvalið að skella í gott kjúklingasalat. Þetta sesarsalat er svo gott, ætti ekki að svíkja neinn því það er bæði ljúffengt og auðvelt að útbúa og svo er hvítlauks- og avókadósósan guðdómlega góð! Fyrir 2-3 500-600 g kjúklingalundir Ítölsk hvítlauksblanda (frá Pottagöldrum) Salt og pipar Romain salat Klettasalat Kokteiltómatar Agúrka Rauðlaukur1-2 avókadó 6-8 beikon sneiðar Parmesan ostur Hvítlaukssósa 1 avókadó 4 msk grísk jógúrt Safi úr 1/2 sítrónu 1-2 hv


KJÚKLINGUR Í RJÓMAOSTASÓSU MEÐ SVEPPUM & ESTRAGON
Ljúffengur helgarmatur sem er fullkominn með góðu rauðvíni. Kjúklingur í rjómaosta- og estragonsósu með sveppum og borinn fram með tagliatelline. Philadelphia rjómaosturinn og estragonið setja svo punktinn yfir i-ið. Það er einnig gott að bera réttinn fram með hrísgrjónum eða byggi og góðu salati. Innblásturinn af þessari uppskrift er réttur sem mamma gerði svo oft sem sló alltaf í gegn og ég varð að prófa að gera mína útgáfu. Það er auðvelt og þægilegt að útbúa réttinn og ég


PÍTA MEÐ HUMRI, BEIKONI & BASIL SÓSU
Humar og beikon í brauði með guðdómlegri sósu, þarf eitthvað að segja meira? Innblásturinn að uppskriftinni er samloka sem fékkst á Rabbarbarnum en sá staður er því miður hættur og verður sárt saknað. Fyrir 3-4 Pítubrauð frá Hatting 500 g skelflettur humar, frosinn 2-3 msk fersk steinselja, söxuð 2 lítil hvítlauksrif, pressuð 1 msk ferskur sítrónusafi 1-2 msk Ólífuolía Salt og pipar Smjör til steikingar 8-12 sneiðar af beikoni (eftir smekk) Kokteiltómatar, skornir í sneiðar K


KJÚKLINGA VEFJUR
Stökkur og safaríkur kjúklingur ofnbakaður með Tuc kexi og settur inn í tortillur með rjómaosti, rauðkáls hrásalati, tómötum og avókadó. Þessi máltíð klikkar ekki og er afar fljótleg! Uppskrift að 4 vefjum 2 kjúklingabringur frá Rose poultry Salt & pipar ½ Tuc orginal kex pakkning ½ dl hveiti 1 egg PAM sprey 4 tortillur með grillrönd frá Mission Tómatur, skorinn í sneiðar Avókadó, skorið í sneiðar Philadelphia rjómaostur Rauðkálshrásalat 5 dl rauðkál 4-5 msk majónes frá Heinz


BLÓMKÁLS TACO MEÐ BBQ SÓSU & HRÁSALATI
Taco með ofnbökuðu blómkáli í bbq sósu, spæsí hrásalati og avókadó. Hrásalatið inniheldur hvítkál, jalapeno og Heinz majónes og það á mjög vel við bbq sósuna og avókadóið. Skotheld og djúsí blanda! Mæli með að stilla af magnið af jalapeno eftir því hvað þið viljið hafa þetta sterkt. Það er líka mjög gott að setja kjúkling í staðinn fyrir blómkálið ef að þið eruð í stuði fyrir það. Uppskrift fyrir 3-4 Litlar tortillur (Mæli með þremur taco á mann) Ólífuolía 400-500 g blómkál


KJÚKLINGA-& GRÆNMETIS GRILLSPJÓT
Kjúklingaspjót í sinneps-og hvítlauks kryddlegi, grænmetisspjót og dásamleg köld sinnepssósa með sætu sinnepi frá Heinz. Sumarlegur og gómsætur réttur sem allir geta gert og passar sérlega vel með köldu hvítvíni. Ég notaði spjót úr stáli sem ég keypti í Kokku og þau eru afar þægileg en auðvitað er hægt að nota tréspjót (sem fást í matvöruverslunum) en þá þarf að muna að láta þau liggja í bleyti áður en þau eru notuð. Fyrir 3-4 Kjúklingaspjót 6-7 spjót 6-7 úrbeinuð kjúklingalæ


FYLLTAR SÆTAR KARTÖFLUR MEÐ INDVERSKU ÍVAFI
Sætar kartöflur eru ljúffengar og passa vel með indverskum kryddum. Hér eru þær fylltar með brokkólí og blómkáli í tikka masala kryddblöndu og bakaðar í ofni með fetaosti. Toppaðar með raita sósu og kóríander. Það er líka gott að bæta kjúklingi við í fyllinguna. Mér finnst síðan ómissandi að hafa naan brauð með og hér kemur einnig uppskrift af ofureinföldu naan brauði úr tortillum. Fyrir 1 1 sæt kartafla Lítill blómkálshaus (eða ½ – ¼ stór blómkálshaus) Lítill brokkólíhaus (e


MEXÍKÓSKT LASAGNA
Ljúffengt og aðeins öðruvísi lasagna. Mig hefur alltaf langað til að prófa að gera mexíkóskt lasagna og gerði loksins mína útfærslu og mikið var það gott. Ég notaði hefðbundnar ítalskar lasagna plötur frá ítalska merkinu De Cecco (fæst í Nettó og Fjarðarkaupum) ásamt nautahakki, salsa sósu, kotasælu, rjómaosti, cheddar osti og ferskum maís. Toppaði það svo með avókdósalsa, ferskum maís, fetaosti og kóríander. Súper djúsí lasagna sem passar vel með rauðvínsglasi. Fyrir 4 600 g


TAGLIATELLINE MEÐ KJÚKLINGI & RJÓMAPESTÓSÓSU
Ég elska hvað þessi réttur er fljótlegur! Kjúklingur í pestórjómasósu með parmesan osti, tómötum, ristuðum furuhnetum og tagliatelline. Svo ljúffengt og passar sérlega vel með hvítvíni. Ég fékk svipaðan rétt oft hjá mömmu en þá með nautakjöti og mér fannst þetta alltaf svo gott! Ég ákvað að prófa að gera mína útgáfu af þessum rétti og hann heppnaðist mjög vel. Ég mæli með að þið prófið! Fyrir tvo 2 kjúklingabringur ÓlífuolíaSalt og pipar 1 krukka grænt pestó frá Filippo Berio


FLJÓTLEG KÍNÓASKÁL
Ljúffeng, holl og fljótleg uppskrift að kínóaskál. Þennan rétt útbý ég oft í hádeginu eða sem léttan kvöldmat og mér líður alltaf svo vel eftir hann. Kínóaskál með grænmeti, eggjum, fetaosti, cheddarosti, avókadó og spírum. Ég nota bara það grænmeti sem er til í ísskápnum hverju sinni. Fyrir 1 1-2 dl eldað kínóa Ólífuolía 2-3 sveppi, smátt skornir 1 lúka spínat 1 dl rifinn cheddar ostur Laukduft Paprikuduft Cayenne pipar Salt & pipar 1-2 dl brokkólí, smátt skorið 1 gulrót, sm


FISKITACOS MEÐ LIMESÓSU
Bragðgott fiskitacos með þorskhnakka, Philadelphia rjómaosti, hvítkáli, rauðkáli, tómat-og avókadó salsa ásamt dásamlegri limesósu. Ég hef gert þennan rétt svo ótal mörgum sinnum og hann er alltaf jafn góður! Uppskriftin er einföld og mjög bragðgóð en þið getið í rauninni notað hvaða fisk sem er. Það er einnig mjög gott að nota t.d. bleikju eða löngu. Fyrir 3-4, ég mæli með 3 litlum tortillum 500 g þorskhnakki 1 egg 1 dl spelt 1 tsk taco explosion 1 tsk cumin 1 tsk cayenne pi


KJÚKLINGUR Í KRÖSTI MEÐ BRIE & SÆTKARTÖFLUMÚS
Þennan dásamlega kjúklingarétt gerði ég í samstarfi við Sigdal og er tilvalinn sem helgarmatur. Það er alveg frábært að nota hrökkbrauð með sjávarsalti og kryddjurtum frá Sigdal sem brauðrasp því það gefur réttinum mjög gott bragð. Kjúklingurinn er í rjómasósu með brie og fleira góðu. Sætkartöflumúsin passar svo sérlega vel með þessu. Djúsí og góður réttur sem slær í gegn! Fyrir 3-4 4 Sigdal hrökkbrauð með jurtum og sjávarsalti 2-3 msk fersk steinselja 1 dl rifinn parmesan os


BUTTERNUT SQUASH TACO
Butternut squash er tegund af graskeri sem gott er að nota í allskyns rétti. Það er stútfullt af vítamínum og geymsluþolið er gott. Graskerið er mjög ljúffengt og passar vel í marga rétti. Þessi uppskrift er einföld og ómótstæðilega góð. Linsubaunirnar passa mjög vel með graskerinu en svo er líka gott að setja svartar baunir eða pinto baunir í staðinn. Einnig er auðvelt að gera réttinn alveg vegan og setja vegan majónes í staðinn fyrir venjulegt. Fyrir 2-3 Litlar tortillur, s


RISOTTO MEÐ PARMA SKINKU, FERSKUM ASPAS & SÍTRÓNU
Risotto með stökkri parmaskinku í hlynsírópi, ferskum aspas og sítrónuberki. Þessi blanda er mjög góð en ég fékk hugmyndina úr bók frá minni uppáhalds Donna Hay . Parma skinkan verður svo extra stökk og ljúffeng svona ofnbökuð með hlynsírópi. Fyrir 2-3 3 dl arborio hrísgrjón 9-10 dl kjúklingasoð (vatn og kjúklingateningur) 2 msk smjör 1 dl hvítvín 1 laukur 1-2 hvítlauksrif Salt og pipar 1 dl parmesan ostur + meira til að bera fram með 1 pkn parmaskinka 1-2 msk hlynsíróp Rifin


LÚXUS BLEIKJA Á 30 MÍNÚTUM
Ég elska einfaldar uppskriftir og þessi er einstaklega einföld og hentar sérlega vel í byrjun vikunar. Bleikja með spínati, fetaosti, sólþurrkuðum tómötum, döðlum og ólífuolíu. Þessi blanda er einstaklega ljúf og mér finnst alls ekki nauðsynlegt að bera þetta fram með sósu. Quinoa eða bakaðir kartöflubátar og ferskt salat er gott meðlæti með bleikjunni. Mér finnst mjög gott að blanda fersku grænmeti við quinoa. Mæli með að þið prófið þetta. Ferskt, hollt og gott! Fyrir 2-3 50


ÖÐRUVÍSI BAUNASÚPA Á SPRENGIDAG
Baunasúpa er klassískur réttur sem margir elska að fá sér á sprengidag og mér fannst mér tilvalið að prófa að gera hana á minn hátt með baunasúpugrunni frá Kötlu. Ég toppaði súpuna með sýrðum rjóma, stökku beikoni og steinselju, það setti punktinn yfir i-ið og gerði hana ferskari. Margir setja beikon ofan í súpuna en ég ákvað að baka beikonið þangað til að það varð mjög stökkt og bera það fram með súpunni í staðinn fyrir saltkjötið. Svo er líka bara mjög gott að sleppa alveg


DJÚSÍ OFNBAKAÐ PASTA
Ég gerði þennan girnilega og góða pastarétt í samstarfi við Innnes og verð að mæla með þessu! Pasta í dásamlegri ostasósu, ofnbakað með nautahakki. Oft langar mann í eitthvað extra djúsí og þá er þessi réttur alveg málið. Rétturinn kallast „million dollar spaghetti“ en ég ákvað að nota penne pasta í staðinn fyrir spaghetti og það er jafnvel bara betra! Að auki slær hann líka í gegn hjá yngri kynslóðinni! Fyrir 4-6 500 g nautahakk 250 g tómatpassata 2-3 msk tómatpúrra 1/2 lauk


TAQUITOS MEÐ KJÚKLINGI & GUACAMOLE
Stökkt taquitos með mjúkri kjúklinga- og ostafyllingu borið fram með guacamole og kóríander sósu. Nammii, þetta er alltof gott! Ef að þið viljið gera uppskriftina ennþá fljótlegri þá er sniðugt að kaupa tilbúna kryddblöndu í staðinn fyrir kryddin á kjúklinginn og skipta kóríander sósunni út fyrir sýrðan rjóma. Uppskrift fyrir 4-5 500-600 g úrbeinuð kjúklingalæri ½ tsk cumin ½ tsk salt ½ tsk hvítlauksduft ½ tsk laukduft ½ tsk paprikuduft ¼ tsk pipar ¼ tsk cayenne pipar 2 msk C


FYLLT EGGALDIN MEÐ FETAOSTI OG GRANATEPLI
Hér kemur uppskrift af mjög góðum grænmetisrétti sem tekur enga stund að elda. Fyllt eggaldin með kínóa, brokkólí, sveppum, skarlottulauk og toppað með avókadó, fetaosti og granatepli. Þessi réttur er mjög bragðgóður og mér finnst alls ekki þurfa sósu með honum. Svo er lítið mál að sleppa bara fetaostinum og þá er hann orðinn vegan. Fyrir 1-2 1 eggaldin 2 dl kínóa, eldað Brokkólí 2 sveppir 1 skarlottulaukur Salt og pipar Chili explosion Ólífuolía, ég nota frá Olifa ½ avókadó
bottom of page