top of page
Search


GRANÓLA BITAR MEÐ MÖNDLUSMJÖRI
Gómsætir granóla bitar með höfrum, kókosflögum, möndlum, chia fræjum, hlynsýrópi, kókos- og möndlusmjöri, döðlum og toppaðir með súkkulaði. Þetta er mjög einfalt í undirbúningi og gott að eiga til fyrir krakkana eða sem millimál með kaffinu. Ég notaði vörur frá Rapunzel í bitana sem eru allar vandaðar, lífrænt vottaðar og fair trade. Kókos- og möndlusmjörið er í miklu uppáhaldi og setur punktinn yfir i-ið. Mér finnst það svo gott að ég gæti borðað það með skeið. Ég hvet ykkur


OREO BOLLA
Bollur með Oreorjóma, hindberjum og Milka rjómasúkkulaði eru virkilega ljúffengar. Mér finnast vatnsdeigsbollur bestar og því ætla ég að deila með ykkur uppskrift sem hefur virkað vel hjá mér. Annars finnst mér líka æðislegt að kaupa tilbúnar bollur út í búð og fylla þær eins og ég vil. Vatnsdeigsbollur 80 g smjör 2 dl vatn 2 dl hveiti 2 stór egg Aðferð Byrjið á því að setja smjör og vatn í pott. Hrærið saman og hitið þar til suðan kemur upp. Takið þá pottinn af hellunni. Bla


SJÓNVARPSKAKA
Hver elskar ekki klassísku og góðu sjónvarpskökuna a.k.a. Lazy daisy? Þessi kaka er í uppáhaldi hjá fjölskyldunni minni og ég er oft beðin um að gera þessa. Einnig er hún mín uppáhalds en ég hef þróað þessa uppskrift í gegnum tíðina. Í henni er mikið af kókoskaramellu en mér finnst hún aðalatriðið. Kakan er dásamlega mjúk, karamellan stökk og er hún afar ljúffeng með ísköldu mjólkurglasi eða góðum kaffibolla. 2 egg 150 g sykur 1 tsk vanilludropar frá Kötlu 125 g hveiti 1 tsk


SMÁKÖKUR MEÐ HVÍTU – & LJÓSU SÚKKULAÐI
Klassískar smákökur með hvítum- og ljósum súkkulaði sem eru ótrúlega bragðgóðar og allir elska. Stökkar að utan og mjúkar að innan og svo er fljótlegt að útbúa þær. Uppskrift gerir 26-28 smákökur 1,2 dl púðursykur50 g smjör (við stofuhita) 1 egg 1 tsk vanilludropar 2 dl hveiti 1 tsk lyftiduft 1 dl möndlumjöl 2 dl hvítt súkkulaði 1½ dl dökkt súkkulaði Aðferð Bræðið 1 dl af hvítu súkkulaði yfir vatnsbaði. Hrærið saman smjör og púðursykur. Bætið egginu saman við og hrærið þar ti


LITLAR JÓLAPAVLOVUR
Uppskrift af litlum pavlovum með bismark sem passar vel sem eftirréttur yfir hátíðarnar. Bismark brjóstsykurinn gerir pavlovurnar mjög jólalegar á bragðið og rjómakúlusósan er dásamleg. Toppið svo pavlovurnar með ykkar uppáhalds berjum. Uppskrift gerir 12 pavlovur 4 eggjahvítur 2 dl sykur 1 tsk edik 1-2 dl bismark brjóstsykur (jólastafur) 3 dl rjómi Ber eftir smekk (hindber, jarðaber, bláber eða brómber) 1 poki rjómakúlur Aðferð Myljið bismark brjóstsykur í matvinnsluvél eða


EPLABAKA MEÐ DUMLE KARAMELLUM
Þessi kaka hefur oft verið borin fram sem eftirréttur og slær alltaf í gegn. Einföld og góð! Hér eru það Dumle karamellurnar sem setja punktinn yfir i-ið og gera eplabökuna svo einstaklega bragðgóða. Svo finnst mér líka frábært að útbúa svona í bústaðarferðunum. Þá mæli ég þurrefnin heima, tek með í boxi eða poka og þá tekur enga stund að töfra þetta fram í bústaðnum. Fyrir 4-6 3 epli 2-3 msk kanilsykur, eða eftir smekk 80 g hveiti 70 g tröllahafrar 100 g sykur 100 g smjör v


CURLYWURLY BOLLAKÖKUR
Þessar gómsætu karamellu Curlywurly bollakökur eru bæði „chewy“ og bragðgóðar. Kökurnar eru svo ljúffengar að það þarf varla krem og pottþétt gott að setja deigið í kökuform eða bökunarform og baka. Uppskriftin gerir 12 bollakökur 2,5 dl hveiti 2 dl púðursykur 1 tsk lyftiduft ½ tsk salt ½ tsk matarsódi 90 g smjör, brætt 2 egg½ dl condensed milk 1 msk ólífuolía 1 tsk vanilludropar 3 Curlywurly Krem 100 g Philadelphia rjómaostur 100 g smjör við stofuhita 5 dl flórsykur 3 stk Cu


EINFÖLD AFMÆLISKAKA MEÐ KARAMELLUKREMI
Ég gerði þessa dásamlegu súkkulaðköku með karamellukremi í 2 ára afmælinu hennar Eddu. Ég notaði súkkulaðikökumixið frá Kötlu sem mér finnst svo gott og gerði mjög gott krem. Ég elska kökur en að skreyta þær hefur ekki verið mín deild. En þessi kaka heppnaðist mjög vel og það besta við hana er að hún er svo fljótleg. Ég bakaði kökubotnana daginn áður en útbjó kremið samdægurs. Skreytti hana með kreminu og rosegold kökuskrauti. Einföld og svakalega ljúffeng! Kaka (bökunarleið


DRAUGA BITAR
Skemmtilegir og sætir nammibitar sem munu slá í gegn í hrekkjavökupartýinu. Svo er líka svo gaman að útbúa þetta með krökkunum. 560 g sykurpúðar 180 g smjör 240 g rice krispies 400 g hvítt súkkulaði Sykur skrímslaugu (fást í Allt í köku, Krónunni ofl.) Aðferð Bræðið saman sykurpúða og smjör. Hrærið vel saman og passið að þetta brenni ekki. Þegar blandan er orðin silkimjúk þá hrærið þið rice krispies saman við í nokkrum skömmtum. Dreifið í 34 x 22 cm eldfast form sem er þakið


SÚKKULAÐI GRANÓLA BITAR
Fljótlegir og gómsætir granóla bitar sem innihalda aðeins fjögur hráefni en þeir innihalda haframjöl, hlynsíróp, súkkulaði og súkkulaðismyrju. Ég notað Vegan súkkulaði frá So Vegan So Fine sem er mjög gott. 2 dl súkkulaðiálegg með heslinhnetum frá So Vegan So Fine eða annað 1 dl hlynsíróp frá Rapunzel 6 dl haframjöl 80 g 70% súkkulaði frá Rapunzel Aðferð Hitið ofninn í 190°C með blæstri. Blandið saman súkkulaðiálegginu og sírópinu í skál. Fínmalið 2 dl af haframjölinu í bland


HOLLT DÖÐLUNAMMI „VIRAL DATE BARK“
Þetta döðlunammi fór algjörlega „viral“ á samfélagsmiðlunum. Ég varð að prófa að útbúa þetta sjálf og notaði ég aðeins fjögur innihaldsefni: Whole Earth hnetusmjörið, ferskar döðlur, 70% súkkulaði og saltaðar pistasíur. Pistasíurnar setja punktinn yfir-ið. Svo einfalt, gott og geggjað að eiga til í frystinum ef mann langar í eitthvað sætt! Ef þið hafið ekki smakkað þá mæli ég með. 30 ferskar döðlur Whole Earth hnetusmjör í túpu eftir smekk 100 g 70% súkkulaði ½ dl pistasíur


JARÐARBERJABOLLUR
Einfaldar og bragðgóðar vatnsdeigsbollur fylltar með jarðarberjarjóma og toppaðar með hvítu súkkulaði. Það er svo skemmtilegt að útbúa bollurnar sjálfur og bjóða í bolludagskaffi. En ef þið hafið ekki tíma til að baka bollurnar þá finnst mér líka sniðugt að kaupa þær tilbúnar út í búð og fylla þær sjálfur. Ég hvet ykkur til að prófa þetta. 200-250 g hvítt súkkulaði 500 ml rjómi 500 g jarðarber frá Driscolls (eitt stórt box) 3 msk flórsykur Aðferð Smátt skerið 200 g af jarðarb


KARAMELLU- & SÚKKULAÐI SMÁKÖKUR
Það styttist í jólin og það þýðir að smákökubaksturin er hafinn! Þessar kökur eru algjörlega ómótstæðilegar – bragðgóðar, stökkar, með dökku súkkulaði og ljúffengri Werther's söltuðum karamellu. Fullkomnar fyrir þennan árstíma! Ég mæli með að prófa og deila með fjölskyldu og vinum. Uppskriftin gerir um 20-22 smákökur 115 g smjör (við stofuhita) 100 g púðursykur 50 g sykur 1 stórt egg 1 tsk vanilludropar 150 g hveiti ½ tsk lyftiduft ¼ tsk matarsódi ¼ tsk salt 100 g dökkt eða m


SMÁKÖKUR MEÐ KÓKOS & HAFRAMJÖLI
Það er svo jólalegt að baka smákökur á aðventunni og hér kemur ein gömul uppskrift sem mamma bakaði alltaf fyrir jólin frá því að ég man eftir mér. Ég deildi þessari uppskrift með Hringbraut í síðustu viku og ég verð að sjálfsögðu að deila henni með ykkur líka. Ofur einfaldar og ljúffengar smákökur. Oft bökuðum við þessar smákökur mörgum sinnum yfir aðventuna þegar ég var lítil því þær kláruðust alltaf strax. Núna baka ég þær alltaf á aðventunni og þær eru alltaf jafn góðar.


SÚKKULAÐISMÁKÖKUR MEÐ HVÍTU TOBLERONE
Þessar súkkulaðismákökur með hvítu Toblerone eru algjörlega ómótstæðilegar! Tilvaldar að baka á aðventunni. Þær eru mjúkar að innan og stökkar að utan og hvítt toblerone setur punktinn yfir i-ið. 100 g púðursykur 50 g smjör (við stofuhita) 1 egg 150 g suðusúkkalaði 1 tsk vanilludropar 100 g hveiti 1 tsk lyftiduft 50 g möndlumjöl 100-200 g hvítt toblerone Aðferð Bræðið helminginn af suðusúkkulaðinu yfir vatnsbaði og saxið hinn helminginn í litla bita. Hrærið saman smjör og púð


LITLAR TOBLERONE PAVLOVUR
Það besta við þessar pavlovu er Toblerone súkkulaði! Ég dreifi því yfir pavlovurnar áður en ég baka þær. Svo gott! Pavlovurnar eru svo toppaðar með rjóma, brómberjum, bláberjum, ástríðu ávexti og söxuðu Toblerone. Mæli með að bera þetta fram sem eftirrétt og það mun pottþétt slá í gegn! Uppskrift að 10 litlum pavlovum 4 eggjahvítur 200 g sykur 1 tsk borðedik 1¼-1½ Toblerone 3-4 dl þeyttur rjómi Brómber eftir smekk Bláber eftir smekk 1-2 ástríðu ávöxtur Aðferð Þeytið eggjahví


TOBLERONE SMÁKÖKUR
Stökkar og bragðgóðar smákökur sem tekur enga stund að útbúa. Mér finnst Toblerone svo jólalegt súkkulaði og það gerir þessar smákökur extra góðar! Ég blanda smátt söxuðu Toblerone saman við deigið ásamt því að setja stóra bita af því í deigið. 200 g mjúkt smjör 2 dl púðursykur 1 dl sykur 1 egg 1 msk vanilludropar 200 g hveiti 1 tsk matarsódi 1 tsk lyftiduft 1 tsk salt 3 stk Toblerone Aðferð Þeytið smjör og sykur þar til blandan verður ljós og kremuð. Blandið eggi og vanillud


LITLAR OSTAFYLLTAR BRAUÐBOLLUR
Gómsætar fylltar brauðbollur með rjómaosti og sesamblöndu. Fullkomið með ísköldum bjór sem snakk eða forréttur. Sniðugt að bera fram í þeim veislum og matarboðum sem framundan eru. Svo finnst mér þær svo fallegar fyrir augað. Philadelphia rjómaostur með graslauk, cheddar ostur, vorlaukur og sesamblanda með smjördeigi er frábær blanda. Namm! Uppskrift að 36 litlum brauðbollum 430 g smjördeig, frosið (6 plötur) 5-6 dl rifinn cheddar ostur 1 pkn Philadelphia rjómaostur með grasl


DJÚSÍ OSTABRAUÐSTANGIR
Ef að þið viljið gera eitthvað djúsi og súper gott þá eru þessar ostabrauðstangir algjörlega málið! Mæli með að borða þær volgar og rífa...


HAUSTLEGT HNETUMIX
Hollustu nammi sem er unaðslega gott, sykurlaust og krönsí. Pekanhnetur, möndlur, pistasíur og graskersfræ í pumpkin spice kryddblöndu og...
bottom of page