top of page
Search


BLEIKJA MEÐ MÖNDLUFLÖGUM, CHILI & ENGIFER
Bleikja með möndluflögum, chili, engifer og hvítlauk borin fram með gómsætu byggi. Örugglega gott að nota lax eða annan góðan fisk í staðinn fyrir bleikjuna. Létt sósa og ferskt salat er einnig gott með réttinum. Ég elska svona mat og hvet ykkur til að prófa Uppskrift fyrir þrjá (tvo fullorðna og eitt barn) 600 g bleikja (þrjú lítil flök) Salt og pipar 3-4 msk smjör 1 chili, smátt skorið 1 tsk ferskur engifer, rifinn 3 hvítlauksrif, rifin eða pressuð Safi úr 1/2 sítrónu 2 dl


KJÚKLINGUR MEÐ PARMASKINKU & MOZZARELLA
Ég sá þessa girnilegu uppskrift frá Donna Hay og ég varð bara að prófa að útbúa mína útgáfu og vá hvað þetta er gómsætur réttur! Kjúklingabringur með ferskum mozzarella og basilíku, vafðar inní parmaskinku og þaktar með panko- og parmesan hjúpi. Það getur bara ekki klikkað. Fullkominn matur til að gera vel við sig. Gott að bera fram með kartöflum, salati og ísköldu rósavíni. Fyrir fjóra 4 kjúklingabringur frá Rose Poultry 16 basilíku laufblöð 8 sneiðar ferskur mozzarella Pipa


VALENTÍNUSARPIZZA
Fullkomin hjartalöguð og rómantísk pizza fyrir valentínusardaginn eða konudaginn með Philadelphia rjómaosti, kokteiltómötum, basiliku, mozzarella, klettasalati, parmesan osti og stökkri parma skinku. Uppskrift að 12 tommu pizzu 4 msk Philadelphia rjómaostur með hvítlauk og kryddi 200 g kokteiltómatar 1-2 msk fersk basilika, smátt skorin 1-2 hvítlauksrif, pressuð eða rifin Krydd: 1 tsk oregano, ½ tsk salt, ¼ tsk pipar 180 g litlar mozzarella kúlur 4 sneiðar parmaskinka Ólífuol


STÖKKAR GRÆNMETIS TOSTADAS
Einfaldur réttur sem þið verðið að prófa! Stökkar tortillur með dásamlegu krydduðu grænmeti og kjúklingabaunum, bræddum osti og gómsætri sósu. Trixið til að ná tortillunum svona extra stökkum og ljúfum er að steikja þær upp úr ólífuolíu, dreifa osti yfir og baka inn í ofni. Fyrir 2 4 dl blómkál, smátt skorið 2 dl sveppir, smátt skornir 1 portobello sveppur, smátt skorinn (má sleppa eða nota meiri sveppi) 2 dl kjúklingabaunir 1 dl skarlottulaukur, smátt skorinn 2 msk ólífuolí


RISARÆKJUTEMPURA TACO
Ég elska taco og er alltaf að prófa eitthvað nýtt í tacogerð. Í þessar uppskrift eru risarækjur sem er alltaf gott í taco. Að djúpsteikja risarækjur í tempura deigi er vægast sagt ótrúlega gott! Svo eru þær líka góðar einar sér og jafnvel með sósunni. Það er í raun ekkert mál að djúpsteikja. Það tekur enga stund og algjörlega þess virði. Sriracha majónesið og salatið passar sérlega vel með þessu. Þið hreinlega verðið að prófa og tilvalið að útbúa á taco tuesday eða bara hvenæ


BANH MI SAMLOKA MEÐ KJÚKLING
Ég gerði þessar girnilegu víetnömsku samlokur sem kallast Banh Mi í samstarfi við Hatting á Íslandi og vá hvað þær eru góðar! Ég hef nokkrum sinnum fengið Banh mi samloku á veitingastað og alltaf líkað það vel. Samlokurnar eru blanda af franskri og víetnamskri matargerð gerðar úr baguette brauði og oft fylltar með einhversskonar kjöti, súrsuðu daikon og gulrótum, gúrku, chili og kóríander. Hér kemur uppskrift af minni útgáfu af Banh mi en hún inniheldur kjúkling í ljúffengum


PIZZA MEÐ AVÓKADÓ OG ALFREDO SÓSU
Ég elska pizzur sem eru aðeins öðruvísi og þessi er þannig. Pizza með alfredo sósu, kjúklingi, beikoni, avókadó, steinselju og osti. Mmm! Uppskriftina er að finna í bókinni minni Avocado sem kom út árið 2016 og það er alltof langt síðan að ég gerði þessa. Ætla klárlega að gera hana ofar. Mæli mikið með! Uppskrift fyrir 2-3 Pizzadeig fyrir 16” tommu pizzu (ég keypti bara tilbúið deig í þetta skiptið) 2 kjúklingabringur, skornar í litla bita Salt og pipar Hvítlaukskrydd 4-6 sne


TACO MEÐ BROKKÓLÍ & RAUÐKÁLSHRÁSALATI
Þetta holla og bragðgóða taco hefur lengi verið í uppáhaldi hjá mér en uppskriftina er að finna í bókinni Vinsælustu uppskriftirnar frá vinsælum matarbloggurum. Það er afar fljótlegt en ég baka brokkólíið og tortillurnar í ofni á meðan ég undirbý rauðkálshrásalatið, fetaostinn og avókadóið. Rauðkálshrásalatið er æðislega gott og ég mæli með að prófa að setja það á hamborgara eða samlokur. Hægt er að breyta uppskriftinni í vegan og skipta þá út majónesinu og ostinum. Ég mæli m


OFNBAKAÐAR KJÖTBOLLUR MEÐ SPAGHETTI
Hér kemur uppskrift að ljúfum „comfor“ rétti. Ítalskar kjötbollur með pestó, dásamlegri sósu og spaghetti bakað í ofni með ferskum mozzarella og toppað með basiliku. Punkturinn yfir i-ið er að setja pestó með sólþurrkuðum tómötum í kjötbollurnar. Nammi! Mér finnst frábært að elda ríflegan skammt og eiga í hádegismat daginn eftir. Þessi uppskrift hentar vel í tvær máltíðir fyrir tvo fullorðna og tvö börn. Uppskrift fyrir fjóra til fimm fullorðna 800 g nautahakk ½ krukka pestó


LJÚFFENG PIZZA MEÐ RISARÆKJUM
Ég á nánast alltaf risarækjur í frystinum því bæði finnst mér þær rosalega góðar og þær eru svo frábært hráefni í fjölbreytta rétti. Þessi pizza er mjög bragðgóð og fljótleg! Risarækjur, rjómaostur, rifinn ostur, klettasalat, parmesan ostur og steinselja. Einnig er mjög gott að bera hana fram með kokteiltómötum. Ég hef einnig oft notað tortillur í staðinn fyrir pizzadeig ef ég vil gera réttinn ennþá fljótlegri. Fyrir 2 Risarækjurnar 20 risarækjur, óeldaðar Ólífuolía 1-2 lítil


FISKIBORGARI Í TEMPURA & KARTÖFLUBÁTAR
Hafið þið smakkað fiskiborgara? Þessi er sjúklega góður! Djúpsteiktur þorskhnakki í tempura deigi með dásamlegri sósu, avókadó, tómötum og hvítkáli í brioche hamborgarabrauði. Ég bar þetta fram með kartöflubátum með fetaosti og steinselju. Ég er búin að gera þennan borgara nokkrum sinnum og hann er alltaf jafn góður! Þorskhnakki passar mjög vel í þennan rétt en ég er viss um að það er gott að vera með annan hvítan fisk eins og t.d. löngu. Uppskrift gerir 4 borgara Þorskhnakka


PIZZA MEÐ GRASKERI
Við fjölskyldan erum dugleg að útbúa heimagerðar pizzur á föstudögum eða um helgar og mér finnst svo gaman að prófa eitthvað nýtt og öðruvísi á pizzuna. Þessi pizza er virkilega góð með butternut squash, sveppum, lauk, hvítlauksmjöri, nóg af osti og borið fram með klettasalati. Ég krydda butternut squash með norður afrísku kryddblöndunni Ras el hanout sem setur punktinn yfir i-ið. Ég hvet ykkur til að prófa ef að þið viljið eitthvað öðruvísi og gómsætt! Uppskrift að einni piz


GRILLAÐUR KÚRBÍTUR MEÐ MANGÓ SALSA
Afar gómsætur, sumarlegur og hollur grænmetisréttur sem ég gerði í samstarfi við Krónuna þar sem öll hráefnin í uppskriftinni fást. Grillaður fylltur kúrbítur með kínóa, ferskum maís, svörtum baunum, cheddar osti, mangósalsa og habanero sósu. Þessi réttur er ferskur en rífur líka aðeins í. Það er frábær hugmynd að bera hann fram með grilluðum tígrisrækjum ef að þið eruð í þannig stuði. Þennan rétt ætla ég að gera aftur, ekki spurning! Fyrir tvo 2 kúrbítar Ólífuolía Krónu kryd


MAC AND CHEESE MEÐ FERSKUM ASPAS
Makkarónur og ostur með ferskum aspas, steinselju og chili flögum. Þetta finnst mér nánast vera hinn fullkomni „comfort food“ réttur. Fljótlegur, góður og djúsí réttur sem börnin elska. Ferskur aspas gerir hann extra ljúffengan og passar sérlega vel með! Ekki skemmir að þetta er afar einfaldur réttur og það eina sem þarf að gera er að sjóða makkarónurnar, útbúa sósuna, blanda öllu saman og baka inn í ofni. Ekkert að skera nema aspasinn. Fyrir 2 200 g makkarónur 20 g smjör 20


BORGARI MEÐ RIFNUM BBQ KJÚKLING
Grillaður og rifinn kjúklingur í Sweet BBQ sósu með hrásalati, tómatöum, avókadó sett í hamborgarabrauð. Ég bar þetta fram með grilluðum maískólfum með parmesan osti, kartöflubátum og Corona bjór með lime. Þetta á allt svo vel saman! Fyrir 4 600 g úrbeinuð kjúklingalæri 3 msk Heinz BBQ Sweet sósa + 2 msk aukalega 2 hvítlauksrif, pressuð eða rifin Salt og pipar 6 dl blaðsalat 6-7 dl hvítkál 6 msk Heinz majónes 1-2 msk Tabasco Sriracha sósa 1 stór buffalo tómatur 1-2 avókadó 4


INDVERSKAR MINI PIZZUR
Dásamlega ljúffengar indverskar pizzur sem ég gerði í samstarfi við Hatting. Þessir pizzabotnar eru mjög sniðugir og virkilega góðir. Þægilegt að eiga þá til í frystinum og grípa í þegar það hentar. Þessi uppskrift hefur lengi verið í uppáhaldi og verður oft fyrir valinu á föstudagskvöldum þegar okkur langar í eitthvað mjög gott og fljótlegt. Ég bara elska uppskriftir sem eru svona einfaldar og fljótlegar! Innblásturinn að þessari uppskrift kemur frá vinsælu pizzunum á...


GRÆNMETIS TOSTADAS
Þessar tostadas eru stökkar og dásamlega bragðgóðar ásamt því að vera mjög fljótlegar í bígerð. Tostadas þýðir „ristað“ á spænsku, en rétturinn er mexíkóskur og inniheldur ristaða eða djúpsteikta tortillu. Í þessari uppskrift þá ofnbaka ég bæði tortillurnar og grænmetið, en það er afar fljótleg og mjög þægileg aðferð. Ég er dugleg að prófa mig áfram í grænmetisréttum og þessi er alveg sérlega góður. Uppskrift fyrir tvo. Tvö til þrjú tostadas á mann 6 litlar tortillur, soft ta


GRÆN & GÓMSÆT PIZZA
Þessi pizza er svo ljúffeng að þið verðið eiginlega að prófa hana! Hún er með dásamlegri rjómaostasósu, edamame baunum, brokkólí, lauk, grænu pestói og ferskum mozzarella. Hún er svo góð að hún hreinlega leikur við bragðlaukana. Ég mæli með að skella í þessa pizzu um helgina og njóta með góðu rauðvínsglasi. Uppskrift að einni 12 tommu pizzu Pizzadeig (dugar í 2 þunnbotna 12 tommu pizzur) 1 dl volgt vatn 1 tsk ger 200 g fínt malað spelt 1 msk ólífuolía ½ tsk salt ½ kúrbítur 1


KJÚKLINGABORGARI MEÐ BRIE & RAUÐKÁLSHRÁSALATI
Þessi kjúklingaborgari er svo sannarlega ljúffengur að þið verðið alls ekki svikin af honum. Ég mæli svo mikið að þið prófið. Panko raspið og brie osturinn passa svo vel saman. Rauðkálshrásalatið setur svo punktinn yfir i-ið! Þetta rauðkálshrásalat er oft gert á mínu heimili, hvort sem það er með borgara eða á taco. Uppskrift fyrir tvo 1-2 kjúklingabringur Panko brauðraspur 1 egg Salt og pipar Krydd eftir smekk Smjör 2 brioche hamborgarabrauð Brie ostur Tómatur Avocado Rauðká


PÍTA MEÐ KJÚKLINGI
Hér kemur uppskrift að ó svo ljúffengri pítu sem ég gerði í samstarfi við Hatting. Tilvalinn sem fljótlegur réttur á virkum degi! Það er mjög þægilegt að eiga frosið pítubrauð frá Hatting í frystinum. Ég gríp það oft í hversdagsleikanum þegar það er mikið að gera og mig langar að gera eitthvað fljótlegt og gott. Uppskrift fyrir 1 Pítubrauð frá Hatting Smá rauðkál, skorið í þunnar ræmur Smá hvítkál, skorið í þunnar ræmur 1-2 dl rifinn kjúklingur 1/2 avocado, smátt skorið Tóma
bottom of page