top of page
Search


RISOTTO MEÐ SVEPPUM OG SPÍNATI
Risotto er einn af mínum uppáhaldsréttum og ég geri það oft á mínu heimili. Það tekur eilítinn tíma að útbúa risotto, þarf að standa yfir pottunum og hræra í svona 30-40 mínútur. Það er samt tvímælalaust þess virði og útkoman er dásamlega ljúffeng! Mér finnst mjög notalegt að gera risotto en ég mæli með að hafa góðan félagsskap og jafnvel eitt hvítvínsglas við hönd. Fyrir 3-4 3 dl arborio hrísgrjón 9-10 dl grænmetissoð (vatn og grænmetisteningur) Smjör 1 dl hvítvín 3-4 skarlo


KJÚKLINGUR Í GRÆNU KARRÝ
Dásamlega bragðgóður og einfaldur réttur sem rífur aðeins í. Kjúklingur, grænmeti, grænt karrý og kókosmjólk frá Blue dragon sett saman í pott eða á pönnu og borið fram með hrísgrjónum. Bragðgóður og hollur réttur sem passar sérlega vel með góðu rauðvíni. Ég setti vorlauk, sykurbaunir, brokkólí og baby corn en ég mæli með að nota það grænmeti sem ykkur langar í. Stundum er líka þægilegt að kaupa frosið wok grænmeti. 500-600 g úrbeinuð kjúklingalæri Salt og pipar Ólífuolía til


BBQ PIZZA
Pizza með kjúklingi í BBQ sósu, rjómaosti, rifnum osti, nachosi, rauðlauk og toppuð með avókadó, tómötum og kóríander. Þetta er stórkostleg blanda sem svíkur engan. Best finnst mér svo að kaupa tilbúinn heilan kjúkling og rífa hann niður. Get svo notað hann í allskonar rétti. Uppskrift að einni pizzu 1 Mission pizza base eða annar pizzabotn(fæst t.d. í Krónunni og Fjarðarkaup) 2-3 dl rifinn kjúklingur 1 dl Sweet BBQ sósa frá Heinz 2 msk hreinn Philadelphia rjómaostur ½ dl rif


TACO MEÐ BUFFALO KJÚKLINGI
Taco með kjúklingi í buffalo sósu, hvítkáli, guacamole og gráðostasósu klikkar ekki! Ég hef alltaf verið mikill aðdáandi buffalo- og gráðostasósu og uppáhaldið mitt er taco. Mjög þægilegt að nota afgang af heilum kjúkling frá því daginn áður í þennan rétt. Mér finnst frábært að útbúa kvöldmat sem hægt er að nýta í annan rétt daginn eftir. Mæli með þremur taco á mann Rifinn kjúklingur (ég notaði restina af heilum kjúklingi sem við vorum með daginn áður) Franks hot sauce buffal


QUESADILLA HRINGUR
Fylltar tortillur með kjúkling, beikoni, tómötum, blaðlauk, salsasósu og nóg af osti. Tortillurnar mynda kramarhús og er þeim svo raðað upp í hring og bornar fram með avókadó sósu. Passar sérlega vel með ísköldum bjór eða drykk. Fallegt fyrir augað og skemmtilegt og gott að borða. Ég er með þrenns konar osta og ostasósu en það má alveg leika sér með þetta og prófa annan ost eða sleppa einum. Svo er geggjað að bera þetta fram í afmælisboðum eða öðrum veislum. Uppskrift gerir 3


BURRITO MEÐ KJÚKLINGI, KÍNÓA & GUACAMOLE
Burrito uppskrift með kjúklingi, kínóa og osti borið fram með sýrðum rjóma og guacamole með cheddar osti. Afar fljótlegur og gómsætur réttur sem krakkarnir elska líka! Fyrir 4 (mæli með 1-2 burrito á mann) 600 g kjúklingalundir 1 lítill laukur, skorinn í strimla 2 msk ólífuolía ½ lime ¼ tsk cayenne pipar ½ tsk cumin 1 tsk salt ½ tsk pipar Stórar tortillur Kínóa Rjómaostur Rifinn cheddar ostur Sýrður rjómi Guacamole með cheddar osti 2 avókadó 1 dl rifinn cheddar ostur ½ lime 1


ENCHILADAS MEÐ OSTASÓSU OG AVÓKADÓ
Tortillur fylltar með nautahakki, Philadelphia rjómaosti og blaðlauki, rúllaðar upp og bakaðar inn í ofni. Punkturinn yfir i-ið er að bera þetta fram með heimagerðri ostasósu, avokadó og sýrðum rjóma ásamt nachosflögum. Rétturinn er barnvænn, svona réttir slá alltaf í gegn hjá börnunum mínum. Ég elska að gera mat sem öllum finnst góður á heimilinu! Þetta er algjört lostæti. Fyrir 3 6 Mission tortillur með grillrönd 400-500 g nautahakk 1 lítil krukka salsasósa Krydd (Cayenne


FLJÓTLEG BLEIKJA MEÐ FETAOSTI, HUNANGI & PISTASÍUM
Bleikja með stöppuðum fetaosti, hunangi og pistasíum sem er fljótleg og afar bragðgóð. Gott að bera fram með fersku grænmeti, kartöflum, rótargrænmeti og kaldri sósu. Fyrir tvo-þrjá 500 g bleikja Ólífuolía Salt & pipar 100 g hreinn fetaostur 1-2 msk hunang 70 g pistasíur Aðferð Smátt skerið pistasíur og stappið fetaostinn. Leggið bleikjuna á bökunarplötu þakta bökunarpappír. Dreifið ólífuolíu yfir og saltið og piprið eftir smekk. Dreifið fetaostinum yfir bleikjuna ásamt hun


FYLLTAR KRÖNSÍ KJÚKLINGABRINGUR MEÐ CHILI & SÍTRÓNU
Fylltar kjúklingabringur með rjómaosti, chili og sítrónu bornar fram með kartöflubátum og hvítlaukssósu. Það passar líka sérlega vel að bera þær fram með góðu salati. Ég elska fylltar kjúklingabringur! Þær verða eitthvað svo extra djúsí og góðar. Ég notaði svo Linsubauna snakk með chili og sítrónu frá Eat real til að fá kröns utan um kjúklinginn og vá hvað það passaði vel. Uppskrift fyrir 3 3 kjúklingabringur 6 dl Eat real lentil chips chili & lemon 1 egg 1 dl spelt Salt & pi


RISARÆKJUSALAT MEÐ MANGÓ & SPÆSÍ MAJÓ
Girnilegt, ferskt og gott risarækjusalat með avókadó, kokteiltómötum, mangó, nachos flögum, kóríander og spæsí mæjó. Mér finnst þetta salat svo létt, gott og sumarlegt. Risarækjur passa sérlega vel með mangó og avókadó. Mæli mikið með að þið prófið þetta! 300 g Sælkerafiskur tígrisrækjur (1 pakkning) 2 msk Caj P kryddlögur 1-2 hvítlauksrif, pressuð Salt og pipar Salatblanda eftir smekk 1-2 avókadó 10 kokteiltómatar 1 mangó Nachos flögur eftir smekk Ferskt kóríander eftir smek


LJÚFFENGUR PARMESAN KJÚKLINGABORGARI
Ó vá hvað þessi kjúklingaborgari er góður! Parmesan ostur er svo góður og hvað þá sem hjúpur utanum kjúkling í stökku brauði með mozzarella, basilíku, tómötum, klettasalati og hvítlaukssósu. Dásamleg blanda sem þið sjáið ekki eftir að prófa og gefur réttinum þennan ítalska ferskleika. Fyrir 3-4 3 kjúklingabringur 1 ½ dl Panko rasp 1 ½ dl parmesan ostur 1 egg Cayenne pipar Salt og pipar Ferskur mozzarella ostur, 2 stórar kúlur Klettasalat eða salatblanda Tómatar Fersk basilika


TÓMATSÚPA MEÐ FERSKUM MOZZARELLA & BASILIKU
Ljúffengt tómatsúpa sem iljar manni. Hún inniheldur gulrætur sem gerir súpuna einstaklega góða. Toppurinn yfir i-ið er að rífa ferskan mozzarella og dreifa yfir súpuna rétt áður en þið borðið hana. Svakalega gott. Mæli með að bera þetta fram með góðu brauði. Uppskrift fyrir 3-4 1/2 laukur 4-5 gulrætur, skornar í bita 400 g plómutómatar í dós 2 msk tómatpúrra 2 hvítlauksrif 2 tsk grænmetiskraftur 4 dl vatn 1-2 dl vatn (meira vatn) 1 ½ dl rjómi Salt og pipar Cayenne pipar Toppa


ALFREDO PASTA MEÐ RISARÆKJUM & RJÓMAOSTI
Risarækjur og penne pasta í ljúffengri Alfredo sósu er afar gómsæt blanda og passar sérlega vel að sötra ískalt hvítvín með. Í minni útgáfu af Alfredo sósu er hveiti og Philadelphia rjómaostur sem gerir hana sérstaklega djúsí, góða og aðeins fylltari. Ef að þið viljið þynnri sósu má sleppa hveitinu eða bæta meiri rjóma eða mjólk saman við. Svo finnst mér líka ómissandi að setja litla ferska tómata í réttinn. Ég mæli mikið þessum góða rétti. Fyrir 2-3 500-600 g stórar tígrisræ


RISOTTO MEÐ STÖKKU CHORIZO & GRÆNUM BAUNUM
Ég er mikill aðdáandi risotto og hér kemur ein súper ljúffeng uppskrift. Í þessari útgáfu er stökkt chorizo, grænar baunir, steinselja eða mynta og mikið af parmesan osti. Toppurinn yfir i-ið er að opna góða hvítvínsflösku sem þið bæði notið í réttinn og drekkið á meðan þið hrærið í grjónunum. Fyrir 4 12 dl vatn 3 msk grænmetiskraftur frá Oscar 4 dl arborio grjón 2 msk smjör 1 laukur 2-3 hvítlauksrif 1 dl hvítvín, ég notaði Ramon Roqueta Macabeo Chardonnay Salt og pipar 3 dl


TIKKA MASALA VEFJUR
Hér kemur uppskrift að vefjum með osti og kjúklingi í Tikka masala sósu bornar fram með sætkartöflufrönskum, mango chutney sósu og fersku salati. Ótrúlega gott og allir á heimilinu elska þetta. 4 kjúklingabringur 1 krukka Tikka masala sósa frá Pataks Ólífuolía Salt & pipar Rifinn mozzarella ostur Philadelphia rjómaostur Missioni tortillur með grillrönd Sætkartöflufranskar 1 sæt kartafla 1-2 msk Madras paste frá Pataks 2 msk ólífuolía Mangó chutney sósa 1 dl sýrður rjómi 1 dl


GIRNILEGAR LITLAR PIZZUR : ÞRJÁR ÚTGÁFUR
Í samstarfi við Hatting þá gerði ég þrjár útgáfur af ljúffengum pizzum til að gefa ykkur hugmyndir. Það eru örugglega fleiri en ég sem eru oft með pizzakvöld og þá sérstaklega á föstudagskvöldum. Það eru líka örugglega margir sem þurfa að gera nokkrar útgáfur af pizzunum. Litlu krílin okkar vilja oft fá einfaldar útgáfur af pizzum en við fullorðna fólkið viljum eitthvað öðruvísi. Þá eru litlar pizzur algjör snilld! Hver og einn getur gert sína útgáfu og það getur skapað sérst


ÍTALSKAR KJÖTBOLLUR & PARMESAN KARTÖFLUMÚS
Þessar kjötbollur klikka ekki. Einfaldar og fljótlegar ítalskar kjötbollur bakaðar í ofni með ferskum mozzarella og bornar fram með parmesan kartöflumús. Kjötbollurnar eru bragðgóðar og ekki skemmir fyrir að þær eru bakaðar í ofni með tómat passata og ferskum mozzarella. Toppaðar með ferskri basilíku sem setur punktinn yfir i-ið. Einnig er gott að bera kjötbollurnar fram með spaghettí í staðinn fyrir kartöflumús. Uppskrift gerir 20-24 kjötbollur 500 g nautahakk 1 egg 1/2 lau


GÓMSÆT OG KRÖNSÍ VEFJA
Þessi vefja sem er fyllt með kjúklingi, rjómaosti, osti, snakki, kóríandersósu, jalapeno, pinto baunum og borin fram með guacamole, er stórkostlega góð blanda. Innblásturinn að uppskriftinni er Crunchwrap sem fæst á Taco bell. Ég hef reyndar aldrei smakkað þetta þar en hef séð ýmsar útgáfur af þessum rétti og langaði að prófa mína útgáfu og hún er virkilega góð! Crunchwrap er stór tortilla sem er fyllt með allskonar góðgæti. Henni er svo pakkað saman í böku og steikt á pönnu.


MASSAMAN KARRÝ MEÐ KJÚKLINGI
Massaman karrý er réttur sem ég panta oft þegar ég fer á tælenska veitingastaði og finnst mér hann afar góður. Ég varð auðvitað að útbúa mína útgáfu af réttinum sem er hollur og ljúffengur með kjúklingi kókosmjólk, rauðu karríi, ananas, kartöflum, baby corn, lauk, hvítlauk og ferskum kóríander borið fram með hrísgrjónum. 3-4 kjúklingabringur frá Rose Poultry 1 msk rautt karrý frá Blue dragon 1 msk Filippo Berio ólífuolía 8 meðalstórar kartöflur 4 gulrætur 125 g baby corn (fer


TACO Í SALATBLÖÐUM MEÐ KÍNÓA OG RISARÆKJUM
Taco í salatblöðum er einfaldur, hollur og góður réttur. Í þessum rétti nota ég salatblöð í staðinn fyrir tortillur og fylli þær með kínóa, avókadó, kokteiltómötum, risarækjum, chili mayo, fetaosti og granateplum. Taco fyrir einn (þrjú taco á mann) 9 risarækjur, óeldaðar 1 hvítlauksrif, pressað Chili explosion Salt og pipar Ólífuolía 3 salatblöð, best að nota romaine salat Eldað kínóa eða Express quinoa (tilbúið kínóa) 1 lítið avókadó 6 litlir tómatar Safi úr ¼ lime Chili may
bottom of page