top of page
Search


DUMPLING SALAT MEÐ EDAMAME & BROKKÓLÍ
Ljúffengt salat með kjúklinga dumplings, edamame baunum, brokkólí og fleira girnilegu. Þetta er svo létt og bragðgott. 1 pakkning dumplings með kjúklingi frá Itsu 4 dl edamame baunir 200 g brokkólí Filippo berio ólífuolía til steikingar 1-2 hvítlauksrif 2 msk rautt karrí frá Blue dragon 2 msk sesamolía frá Blue dragon 2 msk ólífuolía Salt & pipar Pak choi salat (má nota annað salat) 1-2 vorlaukar Stappaður fetaostur eftir smekk 1 msk sesamfræ Ferskur kóríander Radísuspírur eð


TACO MEÐ KJÚKLINGI OG FERSKUM MAÍS
Mjúkt taco með kjúklingi, ferskum maís, fetaosti, avókadó, tómötum og kóríander. Þetta er svakalega góð blanda! Toppurinn yfir i-ð er maís- og fetaostablandan – hún er svo góð að ég get borðað hana eintóma með skeið. Nammi! Ég mæli með þremur taco á mann Litla tortillur 3 kjúklingabringur 1 tsk chipotle krydd 1 tsk cumin 1 tsk salt 1 tsk laukduft 2 msk ólífuolía Safi úr ½ lime Hvítkál (má sleppa) 1-2 avókadó 1-2 tómatar 1-2 msk safi úr fersku lime Ferskur kóríander, smátt sko


EINFALT LINGUINE MEÐ RISARÆKJUM
Þessi réttur klikkar ekki og verður oft fyrir valinu á mínu heimili þar sem hann er í miklu uppáhaldi. Uppskriftin er afar einföld og fljótleg. Risarækjur í hvítlauk, chili og parmesan blandað saman við linguine. Þessi blanda passar sérlega vel saman. Ég á mjög oft risarækjur í frystinum sem ég get gripið í og nota þær í alls kyns rétti. Það passar þó líka vel að nota annað pasta eða spaghetti í stað linguine. Fyrir 2 400-500 g risarækjur 250 g linguine 1 stór chili 2 hvítla


LAMBAKJÖTS KEBAB Í VEFJUM
Þetta ljúffenga og holla kebab útbjó ég í samstarfi við Íslenskt lambakjöt. Uppskrift að lambakjöti með Ras el hanout kryddblöndu og fullt af girnilegu grænmeti, cheddar osti og dásamlegri sósu borið fram í vefjum. Mjög góður réttur sem ég mæli hiklaust með. Íslenskt lambakjöt er svo bragðgott og er hágæða hráefni. Það inniheldur mikið af OMEGA 3 og járni, hollt og próteinríkt og án GMO. Þennan rétt er tilvalið að útbúa þegar þið eigið lambakjötsafganga af helgarlærinu eða hr


EINFALT FISKITACOS
Uppskrift að fljótlegu, djúsí og einföldu fiskitaco sem sló í gegn hjá fjölskyldunni. Ég notaði fiskistangirnar frá Gími Kokki. Vá hvað þær eru bragðgóðar en þær eru gerðar úr glænýjum þorski sem er hjúpaður með raspi. Stangirnar eru foreldaðar en einnig frystivara og er því mjög þægilegt að eiga þær til í frystinum. Tacoið inniheldur einnig tómata, gúrku, avókadó, salat, kínakál, vorlauk og einfalt spæsí majó með japönsku majónesi og vá hvað þetta er allt saman gott. Þetta e


OFNBÖKUÐ LANGA MEÐ KRÖSTI Í RJÓMAOSTASÓSU
Langa sem er og ofnbökuð í dásamlegri rjómaostasósu með sólþurrkuðum tómötum, sveppum, parmesan osti, rjóma og spínati. Punkturinn yfir i-ið var að dreifa Eat real snakki með dill bragði yfir réttinn þannig að hann varð stökkur og góður. Uppskrift fyrir 4 600 g langa (einnig gott að nota t.d. þorsk eða ýsu) Ólífuolía 250 g sveppir 1 dl blaðlaukur, smátt saxaður ½ -1 dl hvítvín, ég notaði Ramon Roqueta Macabeo Chardonnay 1-2 hvítlauksrif, pressað eða rifið 200 g sólþurrkaðir t


FYLLTUR KÚRBÍTUR
Kúrbítur fylltur með grænmeti, fetaosti, klettasalati og spicy mayo. Ljúffengur og einfaldur grænmetisréttur. Ég er alltaf að prófa mig áfram að gera grænmetisrétti og reyni að hafa slíkan rétt nokkrum sinnum í viku. Svo er hægt að skipta majónesinu út fyrir vegan majónesi og taka fetaostinn út og þá er hann orðinn vegan. Uppskrift fyrir 1 1 kúrbítur Ólífuolía 1-2 dl brokkólí 1-2 dl blómkál 2-4 sveppir Laukduft Túrmerik Cumin Salt og pipar Stappaður fetaostur Klettasalat Sósa


SÚPER NACHOS MEÐ KALKÚNAHAKKI
Súper nachos með kalkúnahakki, svörtum baunum, ostasósu, salsasósu, avókadó og vorlauk. YUM hvað þessi réttur er góður og fljótlegur. Ég notaði tortilla flögur, ostasósu og salsasósu frá Mission sem er allt alveg dásamlega bragðgott. Kalkúnahakkið kemur líka skemmtilega á óvart og passar mjög vel í þennan rétt. Fyrir 4 600 g kalkúnahakk (fæst frosið í helstu matvöruverslunum) 2 hvítlauksrif, pressuð eða rifin 1 lítill laukur, smátt skorinn Ólífuolía til steikingar Krydd: 1 t


FERSKT KJÚKLINGASALAT MEÐ JARÐABERJUM & PARMESAN
Ferskt og gott kjúklingasalat með kjúklingabringum, ferskum aspas, stökkri hráskinku, jarðaberjum, avókadó, parmigiano reggiano ásamt fleiri dásemdar hráefnum í ferskri salatdressingu. Þessi samsetning lætur bragðlaukana gjörsamlega dansa. Hvítlauks grillolían frá Caj P gerir kjúklinginn svo einstaklega bragðgóðan. Ég er búin að nota þennan kryddlög ansi mikið í sumar enda passar hann með mörgu. Mæli með að bera þetta fram með volgu hvítlauksbrauði og glasi af köldu rósavíni


FALAFEL MEÐ TAHINI SÓSU
Hér kemur ein dásamlega holl, góð og einföld vegan uppskrift. Falafel með smjörbaunum og grænum baunum borið fram með kínóa, avókadó, agúrku, fræjum úr granatelpi, steinselju/kóríander og tahini sósu. Ég setti falafel bollurnar í pítubrauð fyrir krakkana og þeim fannst það mjög gott. 1 dós smjörbaunir, 400 g 2 ½ dl frosnar grænar baunir, afþýddar 1 dl steinselja eða kóríander ½ dl spelt ½ dl sesamfræ + auka til að velta bollunum upp úr 1 hvítlauksrif 1 tsk cumin Salt og pipar


OFNBAKAÐ TACOS MEÐ LINSUBAUNUM
Ég elska einfaldar, ljúffengar og hollar uppskriftir og hér kemur taco uppskrift sem tikkar í öll boxin. Taco með tilbúnum linsubaunum frá Oddpods sem ég útbjó í samstarfi við Danól. Ég notaði brúnu linsubaunirnar í tacoið ásamt nóg af osti, salsa sósu, spínati, blaðlauk, grænu chili og bar fram með dásamlegri sósu, avókadó og kokteiltómötum. Fyrir tvo 1 poki Brown lentils frá Oddpods (linsubaunir) 1 dl Salsa sósa6 litlar tortillur Ólífuolía Spínat Blaðlaukur, smátt skorinn


TACO MEÐ HUMRI & BEIKONI
Taco með humri, beikoni, rauðkáli, Philadelphia rjómaosti, tómötum, hvítlauks-og steinseljusósu og toppað með granateplafræum. Svo bragðgóð og einföld uppkrift. Uppskrift að 6-8 tacos 330 g skelflettur humar frá Sælkerafiski (1 pakkning) 1 msk ólífuolía 4 msk steinselja, smátt söxuð 1 hvítlauksrif, pressað eða rifið Salt & pipar Chili flögur 1 msk smjör 8-10 beikonsneiðar 6-8 litlar tortillur Philadelphia rjómaostur eftir smekk 4-6 kokteiltómatar, smátt skornir 4-5 dl rauðkál


GRILLSPJÓT MEÐ CHIMICHURRI & FERSKUR MAÍS
Grilluð nautaspjót með grænmeti, chimichurri sósu og ferskum maís er afar gómsætur réttur. Chimichurri er svo fersk og góð sósa en hún inniheldur ferskar kryddjurtir, ólífuolíu, hvítvínsedik, chili og hvítlauk. Sósan er er ekki aðeins borin fram með kjötinu heldur er það látið marinerast í henni og er því gott að undirbúa kjötið með góðum fyrirvara svo það fái tíma til að drekka í sig dásamlega bragðið af sósunni. Ég notaði tilbúið kartöflusmælki með timian sem fæst í Krónunn


GRILLAÐAR KJÚKLINGALUNDIR & KARTÖFLUSALAT
Kjúklingalundir í dásamlegum kryddlegi bornar fram með kartöflusalati. Þetta er ekta sumargrill réttur sem er þægilegur að bera fram á sumardögum því hægt er að útbúa kartöflusalatið og kryddlöginn kvöldinu áður og fá þannig meiri tíma til að njóta. Ég notaði Maille sinnepið góða í bæði kryddlögin og kartöflusalatið en hef einmitt mikið notað þetta sinnep í gegnum tíðina. Hugmyndina að kjúklingnum fékk ég frá foreldrum mínum sem útbúa oft svipaðan rétt en mér finnst estragoni


SMØRREBRØD MEÐ RAUÐSPRETTU & HEIMAGERÐU REMÚLAÐI
Þetta sm ø rrebr ø d er orðin árleg hefð í aðventunni hjá mér. Ég er alin upp við að borðað sé sm ø rrebr ø d á aðventunni og mér finnst það ómissandi hefð. Rauðsprettan er svo dásamlega góð en hún hefur lengi verið í uppáhaldi hjá mér. Ég baka hana í ofni því mér finnst það bæði betra og fljótlegra því þá undirbý ég meðlætið á meðan hún bakast. Hér er rauðsprettan borin fram á rúgbrauði með rauðkáli og remúlaði. Það er ljúffeng blanda sem passar vel saman. Punkturinn yfir i-


TORTILLU KAKA MEÐ GRASKERI
Súper góður og einfaldur grænmetisréttur. Tortillum er staflað upp í köku og fylltar með ýmsu góðgæti eins og butternut squash, sveppum, lauk, Philadelphia rjómaosti og cheddar osti. Þetta er svo borið fram með guacamole með fetaosti. Grasker er gott með svo mörgu, sérstaklega með þessum dásamlega góðu tortillum. Rjómaosturinn og cheddar gera réttinn svo einstaklega djúsí og góðan. 5 tortillur með grillrönd frá Mission 1 butternut squash 2 msk ólífuolía ½ tsk chiliduft 1 tsk


PIZZA MEÐ KARTÖFLUM OG TRUFFLU AIOLI
Ein af mínum uppáhalds pizzum! Hún er með kartöflum, klettasalati og trufflusósu. Það er mjög auðvelt að útbúa hana og að auki er hún sérlega góð. Innblásturinn fékk ég frá nafnlausa pizzastaðnum á Hverfisgötu 12 en sá staður var í miklu uppáhaldi hjá mér og hans er sárt saknað. Uppskrift af 12 tommu pizzu 200 g pizzadeig 6-8 kartöflur, meðalstórar 3 msk olívuolía 2 hvítlauksrif 3-4 msk smjör 3 skarlottulaukar 2 hvítlauksrif Rifinn mozzarella 2 msk steinselja Klettasalat Truf


GRILLAÐ FISKITACOS MEÐ ANANAS SALSA
Dásamlegt tacos með grilluðum fiski sem ég gerði í samstarfi við Krónuna þar sem öll hráefnin í uppskriftinni fást. Grillaðir þorskhnakkar í ljúfum kryddlegi, salsa með ferskum ananas, avókadó og tómötum, jalapeno sósa og litlar tortillur frá Mission. Sumarlegur, ferskur og virkilega gómsætur réttur. Það passar mjög vel að setja ferskan ananas í salsað og bera fram með fiskinum. Namminamm! Fyrir 3-4 (Ég mæli með 3 litlum tortillum á mann) 500 g þorskhnakkar Safi úr 1/2 lime 1


TORTELLINI MEÐ BEIKONI, SVEPPUM OG FERSKUM ASPAS
Mér finnst ferskt tortellini svo ljúffengt, klikkar aldrei og mikill „comfort“ matur sem er djúsí og góður. Mér finnst tortellini falla algjörlega undir þann flokk. Hér kemur ein tortellini uppskrift sem inniheldur beikon, sveppi, ferskan aspas og dásamlega góða parmesan-og sítrónusósu. Fljótlegt og gott! Fyrir 3-4 500 g ferkst tortellini með ricotta og spínati Nokkrar vel stökkar beikonsneiðar (ofnbakaðar) 4 sveppir (miðstærð) 10 ferskir aspas stilkar 1 stórt rifið hvítlauks


PARMESAN KJÚKLINGUR
Hér kemur mín útgáfa af Parmesan kjúklingi eða hinum þekkta rétti „Chicken parmigiana” og vá hvað hann var góður. Þetta er ekta „comfort food“ réttur og inniheldur hann pasta, kjúkling í parmesan raspi, ferskan mozzarella og tómatbasil sósu. Uppskrift fyrir þrjá 3 kjúklingabringur Salt og pipar 2-3 msk hveiti 50 g smjör, skorið í teninga 1 stórt egg 2 dl pankó rasp (fæst t.d. í Hagkaup, Krónunni og Nettó) 1 dl ferskur parmesan ostur, rifinn Salt og pipar Sósa Tilbúin tómatssó
bottom of page