top of page
Search


RJÓMALAGAÐ FUSILLI MEÐ SVEPPUM
Einfalt er oft best. Þessi uppskrift er dásamleg fyrir alla sveppaunnendur og er fullkominn réttur fyrir jólaannríkið. Hún er einföld, fljótleg og ótrúlega ljúffeng – passar bæði á virkum dögum og þegar þú vilt gleðja fjölskyldu eða gesti í desember. Það er einnig gott að bæta smávegis af rifnum sítrónubörk fyrir ferskleika eða smá chiliflögum fyrir kryddaðri útgáfu. Mæli með að bera fram með góðu hvítvínsglasi og njóta vel í aðventunni. 250 g De Cecco Fusilli pasta 2 msk ó


STEIKAR TACOS
Grillað nautakjöt í tacos með havartí osti, lauk, salati, tómötum og léttri kóríander- og graslaukssósu er algjört nammi! Þessi réttur er búinn að vera margoft í matinn hjá mér í sumar og núna verð ég bara að deila þessu með ykkur! Mér finnst geggjað að kaupa bara mínútusteik, setja góðan kryddlög og grilla örsnöggt. Einfalt og gott sem þið verðið að prófa! Psst… það er mjög gott að bera þetta fram með ískaldri Stellu ef að þið viljið gera extra vel við ykkur. 500 g nauta mín


BBQ TAQUITOS
Stökkar taquitos fylltar með rifnum kjúklingi í BBQ sósu og rifnum osti, bornar fram með heimagerðri ranch sósu og ferskum maís. Þetta er mjög bragðgóður og djúsí réttur sem allir elska á heimilinu! En hey, ekki láta fjölda á kryddum í sósunni stoppa þig! Hún er alveg sjúklega góð og það er mjög gott að nota þurrkað krydd í stað fersku kryddjurtanna eða þið getið sleppt einhverjum kryddum sem þið fílið ekki. Mér finnst skipta mestu máli að smakka hana til. 1/2 kjúklingur, ri


GRILLAÐ LAMBAKONFEKT MEÐ KRÖMDUM KARTÖFLUM
Þegar þið viljið dekra við ykkur eða bjóða í almennilega grillveislu, þá er lambakonfekt algjör lúxus en samt ótrúlega einfalt að útbúa. Lambakonfekt í Caj P marineringu og borið fram með kaldri rjómaostasósu og stökkum kartöflum af grillinu. Þetta slær alltaf í gegn! Best af öllu er að hægt er að undirbúa allt fyrirfram sem gerir þetta þægilegt hvort sem þið eruð að fá gesti í mat eða að grilla úti í ferðalagi. Fyrir þrjá-fjóra 800–900 g lambakonfekt (með beini) 1 dl Caj P O


OFNBÖKUÐ BLEIKJA MEÐ PARMESANKRÖSTI
Ofnbökuð bleikja toppuð með panko raspi og parmesan er eitthvað sem allir ættu að prófa! Þessa uppskrift hef ég svo oft og er í miklu uppáhaldi hjá mér. Tekur enga stund að útbúa og bleikjan verður svo stökk og ljúffeng. Þetta er svo gott að mér finnst ekki þurfa sósu með þessu. Það er gott að bera hana fram með byggi eða ofnbökuðum kartöflubátum og góðu grænmeti. Það er líka gott að stappa fetaost og setja í staðinn fyrir parmesan ostinn. Fyrir 3 600-700 g bleikjuflök 50 g s


OFNBAKAÐ PENNE MEÐ PARMESAN KJÚKLINGI
Ekta „comfort“ matur sem allri fjölskyldunni finnst góður. Klassískur parmesan kjúklingur eða „Chicken parmigiana” er fyrirmynd réttarins en þessi útgáfa er fljótlegri og einfaldari. Rétturinn inniheldur pasta, kjúkling, cherry- og basil pastasósu, rjómaost, parmesan, panko rasp og mozzarella. Fyrir fjóra 3-4 eldaðar kjúklingabringur, skornar í strimla 300-400 g penne pasta frá De Cecco 1 Philadelphia rjómaostur 1 dós Heinz Cherry Tomato & Basil pasta sósa Salt og pipar eftir


TANDOORI KJÚKLINGUR Á NAAN BRAUÐI
Bragðgóður og ljúfur grillréttur sem ég útbjó í samstarfi við Innnes. Þið verðið að prófa þennan í sumar. Grillaður tandoori kjúklingur borinn fram á heimagerðu naan brauði með cheddar- og rjómaosti, gúrku, tómötum, klettasalati og mangó chutney sósu. Þessi réttur leikur við bragðlaukana og frábær með ísköldu hvítvíni. Fyrir fjóra 1 pkn Rose Poultry úrbeinuð kjúklingalæri (700 g) 2 msk hrein jógúrt 3 msk tandoori paste frá Patak’s Philadelphia rjómaostur 2 dl smátt skorin gúr


BBQ KJÚKLINGASALAT MEÐ ANANAS, AVÓKADÓ & KALDRI JÓGÚRTSÓSU
Sumarlegur grillréttur sem er bæði ferskur og góður!! Djúsí BBQ kjúklingalæri með smá ananas og pínu chili með salati, avókadó, fetaosti, pistasíuhnetum, tómötum og rauðlauk. Sósan setur punktinn yfir i-ið. Létt hvítvín fer líka einstaklega vel með. Fullkomið í sumarveisluna eða bara sem einfaldur kvöldverður. Fyrir 4 700 g úrbeinuð kjúklingalæri Salt og pipar 1 msk ólífuolía 1dl Hunts BBQ sósa 1dl smátt skorinn niðursoðinn ananas (með 1-2 msk safa) 1 tsk chipotle mauk (má sl


HREKKJAVÖKU QUESADILLAS
Ljúffengar quesadillas sem allir elska. Fylltar með osti, kjúklingi, svörtum baunum og salsa sósu og bornar fram með guacamole og sýrðum rjóma. Svo er þetta svo hræðilega krúttlegt og krökkunum finnst svo skemmtilegt að borða. Uppskriftin gerir 10 litlar quesadillas 2 pakkningar street tacos frá Mission (20 litlar tortillur) 400-500 g kjúklingur, smátt skorinn eða rifinn 400 g svartar baunir 1 dós salsa sósa frá Mission Salt og pipar eftir smekk 1 havarti ostur 500 g rifinn c


KJÚKLINGALÆRI MEÐ SÍTRÓNU & KRAMDAR KARTÖFLUR
Hér kemur uppskrift að gómsætum ofnbökuðum kjúklingalærum með ferskum kryddjurtum, hvítlauk, sítrónu og chili. Kjúklingurinn er borinn fram með krömdum kartöflum, kaldri parmesan sósu og fersku salati. Þennan rétt hef ég oft og mörgum sinnum gert og hann klikkar aldrei. Mæli með að þið prófið ykkur áfram með kryddjurtirnar, þær mega vera færri en uppskriftin segir til um. Kjúklingur Úrbeinuð kjúklingalæri frá Rose Poultry 2 msk ólífuolía Safi úr ½ sítrónu 3-4 hvítlauksrif, p


LJÚFFENGIR BBQ KJÚKLINGASTRIMLAR
Lúxus kjúklingastrimlar eins og þeir gerast bestir. Þeir eru mjúkir í gómsætum BBQ hjúp og bornir fram með gráðostasósu og kartöflubátum. Punkturinn yfir i-ið er svo að para þá saman með góðu rauðvíni. Í uppskriftina nota ég mjög góða BBQ sósu frá Bulls-eye með smokey Chipotle sem rífur aðeins í. 700 g kjúklingalundir frá Rose Poultry (1 poki) 1-2 egg 1 dl hveiti Krydd: 1 tsk salt, ¼ dl pipar, ½ tsk laukduft, ½ tsk hvítlauksduft, ½ dl ólífuolía 1 dl Bulls-eye Smokey Chipotle


TACOS MEÐ BBQ BLEIKJU & MANGÓSALSA
Fiskur þarf sko alls ekki að vera leiðinlegur og hér kemur bleikja í afar góðum búningi. Ljúffengt taco með BBQ bleikju, mangósalsa, sýrðum rjóma með jalapeno Tabasco, vorlauk og sesamfræjum. Þessi samsetning er ofur góð og öll hráefnin vinna vel saman. Ferskt, gott og fljótlegt og ég mæli með að þið prófið. Fyrir tvo 500 g bleikja 2-3 msk Heinz BBQ sósa Salt & pipar Litlar tortillur 1,5 dl sýrður rjómi 1-2 tsk jalapeno Tabasco Romaine salat eða annað salat 1 vorlaukur Sesamf


FISKUR MEÐ HARISSA, PEKANHNETUM & MÖNDLUM
Ljúffengur og hollur mánudagsfiskur sem tekur enga stund að útbúa. Ég toppa fiskinn með harissa kryddi, möndlum og pekanhnetum sem passar mjög vel með bleikjunni. Gerir hana krönsí og góða. Gott að bera fram með kínóasalati og mangó chutney jógúrtsósu. Fyrir tvo 500 g bleikja eða lax 1/2 dl saxaðar pekanhnetur 1/2 dl saxaðar möndluflögur 1 msk harissa krydd 1/2 tsk salt 1 msk ólífuolía Aðferð Leggið fiskinn á bökunarplötu þakta bökunarpappír og saltið og piprið eftir smekk. S


LJÚFFENGT ANDASALAT
Gott og einfalt andasalat sem ég gerði í samstarfi við Krónuna þar sem öll hráefnin í uppskriftinni fást. Salatið inniheldur m.a. andalæri, granatepli, fetaost, edamame baunir og wasapi hnetur og sló algjörlega í gegn. Þessi samsetning var alveg ótrúlega góð. Fyrir fjóra 1 dós Rougié confit de canard Salatblanda frá Hollt og gott (með klettasalati, baby leaf ofl.) 4 dl edamame baunir frá Gestus, frosnar Salt og pipar 4 smágúrkur 4-6 vorlaukar 1 granatepli 2 dl salatostur (f


OFNBAKAÐAR TORTILLARÚLLUR
Ljúffengar tortillarúllur fylltar með nautahakki, osti, sýrðum rjóma og tómötum bakaðar inn í ofni og bornar fram með guacamole og sýrðum rjóma. Þetta skemmtilegt twist á annars klassískum rétti og sniðugt í partýið. Mjög barnvænn og gómsætur. Fyrir 3-4 500 g nautahakk Krydd: 1 tsk salt, ¼ tsk chili duft, ½ tsk cumin, ½ tsk reykt paprika, ½ tsk laukduft Tortillur frá Mission 1 laukur 2-3 hvítlauksrif, pressuð eða rifin 1 salsa sósa frá Mission Sýrður rjómi 4 tómatar, smátt s


FYLLT GRASKER MEÐ KJÚKLINGABAUNUM & KÍNÓA
Hér er á ferðinni afar gómsætur grænmetisréttur sem er auðvelt að útbúa. Ofnbakað butternut squash (grasker) fyllt með kjúklingabaunum frá Oddpods, kínóa frá Quinola, lauk, hvítlauk, sveppum, salvíu, fetaosti og pistasíum. Graskerið er einnig dásamlega gott og mjög næringarríkt, inniheldur mikið af góðum trefjum og A-vítamíni. Uppskrift fyrir 4 2 butternut squash (grasker) Ólífuolía eftir smekk Salt & pipar eftir smekk ½ tsk þurrkuð salvía 1 lítill laukur, smátt 6 meðalstóri


PASTASALAT MEÐ FERSKUM MAÍS, TÓMÖTUM & KJÚKLING
Einfalt og gómsætt kalt pastasalat með ferskum maís, fusilli pasta, tómötum, kjúklingi og fetaosti. Þegar ferskur maís kemur í verslanir er æðislegt að nota það í þessa uppskrift! Maís er svo góður með pastanu, fetaostinum, tómötunum og sósunni og gerir alveg extra gott bragð. Rétturinn er einnig ljúfur í veislum en þá er sniðugt að sleppa avókadó eða bæta því við rétt áður en rétturinn er borinn fram. Mæli með að bera þetta fram með ísköldu rósavíni. Fyrir 4 400 g fusilli fr


GÓMSÆTUR JALAPENO- & CHEDDAR BORGARI
Ofur djúsí heimagerður borgari með jalapeno, cheddar osti og dásamlegri hamborgarasósu frá Heinz. Stundum er næs að gera aðeins extra og útbúa hamborgarana sjálf/ur frá grunni og setja þá á næsta level. Hvet ykkur til að prófa þennan, best að grilla hann! Passar sérlega vel með kartöflubátum og ísköldum bjór. Uppskrift fyrir 4 500 g nautahakk 1 egg 2-3 msk jalapeno úr dós, smátt skorið 1½ dl rifinn cheddar ostur 4 msk pankó raspur Krydd: 1 tsk laukduft, 1 tsk salt, ¼ tsk pip


OFNBAKAÐ PENNE PASTA MEÐ PESTÓ & GRÆNMETI
Djúsí og næringaríkur pastaréttur sem líkist grænmetislasagna nema bara með penne pasta í staðinn fyrir lasagnaplötur. Bakað í ofni með nóg af grænmeti, osti, bechamel sósu og rauðu pestói. Bragðgott, dásamlegt og passar vel með ljúfu rauðvíni. Uppskrift fyrir 6 500 g penne pasta frá De cecco 4 gulrætur 1 lítill laukur 3 hvítlauksrif 200 g sveppir 1 kúrbítur 200 g brokkólí 250 g kokteiltómatar 1 rautt pestó frá Filippo berio Ólífuolía Salt & pipar Gott að krydda með þurrkaðr


TACOS MEÐ MADRAS KJÚKLINGI
Tacos með indversku ívafi er ótrúlega gott og einfalt! Ég baka street tacos tortillur með hvítlaukssmjöri þannig að þær fá sérstaklega gott bragð. Ég fylli þær svo með madras kjúklingi, salati, gúrku, rauðlauk og mangó chutney sósu. Þessi réttur gjörsamlega leikur við bragðlaukana. Miðað er við þrjár tacos tortillur á mann Mission street tacos tortillur 3 Rose Poultry kjúklingabringur, smátt skornar Filippo berio ólífuolía til steikingar Salt og pipar 1 krukka Pataks Madras s
bottom of page