top of page
Search


HOLLARI NAMMIBITAR
Ég elska að eiga þessa dásamlega góðu nammibita í frystinum! Passa sérlega vel með kaffinu. Þeir innihalda döðlur, banana, möndlur, pekanhnetur, kókosflögur, hnetusmjör og súkkulaði. Það er svo geggjað að eiga til eitthvað sætt sem er í hollari kantinum. 10 stk döðlur, lagðar í bleyti í 30-40 mínútur 1 lítill banani 100 g möndlur 100 g pekan hnetur 1/2 dl ristaðar kókosflögur ½ krukka hnetusmjör (170 g) 1 msk kókosolía 100 g 70% súkkulaði Aðferð Blandið saman döðlum, banana,


KORNFLEX NAMMIBITAR
Að eiga þessa nammibita gerir lífið svo sannarlega ljúft um helgar og passar sérlega vel með kaffinu. Þeir eru ómótstæðilega góðir og tekur enga stund að útbúa. Hnetusmjörsbragðið er svo gott og kornflexið gerir þetta svo krönsí. Algör snilld að eiga þetta til í frystinum. Mæli með að skella í þetta um helgina. 8 dl kornflex 2-3 dl síróp ⅔ hnetusmjörkrukka, ég nota frekar þunnt og mjúkt 200 g suðusukkúlaði 40-50 g hvítt súkkulaði Aðferð Bræðið hnetusmjör og síróp í potti og b


OREO BOLLA
Bollur með Oreorjóma, hindberjum og Milka rjómasúkkulaði eru virkilega ljúffengar. Mér finnast vatnsdeigsbollur bestar og því ætla ég að deila með ykkur uppskrift sem hefur virkað vel hjá mér. Annars finnst mér líka æðislegt að kaupa tilbúnar bollur út í búð og fylla þær eins og ég vil. Vatnsdeigsbollur 80 g smjör 2 dl vatn 2 dl hveiti 2 stór egg Aðferð Byrjið á því að setja smjör og vatn í pott. Hrærið saman og hitið þar til suðan kemur upp. Takið þá pottinn af hellunni. Bla


SJÓNVARPSKAKA
Hver elskar ekki klassísku og góðu sjónvarpskökuna a.k.a. Lazy daisy? Þessi kaka er í uppáhaldi hjá fjölskyldunni minni og ég er oft beðin um að gera þessa. Einnig er hún mín uppáhalds en ég hef þróað þessa uppskrift í gegnum tíðina. Í henni er mikið af kókoskaramellu en mér finnst hún aðalatriðið. Kakan er dásamlega mjúk, karamellan stökk og er hún afar ljúffeng með ísköldu mjólkurglasi eða góðum kaffibolla. 2 egg 150 g sykur 1 tsk vanilludropar frá Kötlu 125 g hveiti 1 tsk


LITLAR JÓLAPAVLOVUR
Uppskrift af litlum pavlovum með bismark sem passar vel sem eftirréttur yfir hátíðarnar. Bismark brjóstsykurinn gerir pavlovurnar mjög jólalegar á bragðið og rjómakúlusósan er dásamleg. Toppið svo pavlovurnar með ykkar uppáhalds berjum. Uppskrift gerir 12 pavlovur 4 eggjahvítur 2 dl sykur 1 tsk edik 1-2 dl bismark brjóstsykur (jólastafur) 3 dl rjómi Ber eftir smekk (hindber, jarðaber, bláber eða brómber) 1 poki rjómakúlur Aðferð Myljið bismark brjóstsykur í matvinnsluvél eða


EPLABAKA MEÐ DUMLE KARAMELLUM
Þessi kaka hefur oft verið borin fram sem eftirréttur og slær alltaf í gegn. Einföld og góð! Hér eru það Dumle karamellurnar sem setja punktinn yfir i-ið og gera eplabökuna svo einstaklega bragðgóða. Svo finnst mér líka frábært að útbúa svona í bústaðarferðunum. Þá mæli ég þurrefnin heima, tek með í boxi eða poka og þá tekur enga stund að töfra þetta fram í bústaðnum. Fyrir 4-6 3 epli 2-3 msk kanilsykur, eða eftir smekk 80 g hveiti 70 g tröllahafrar 100 g sykur 100 g smjör v


EFTIRRÉTTIR Í GLÖSUM
Tvær gómsætar hugmyndir að eftirréttum í glösum eða krukkum. Ostakaka með möndlusmjöri, haframulningi og ferskum berjum sem er aðeins í hollari kantinum og marengs í glösum með dumle, rjóma, jarðaberjum, ástríðuávexti og fræjum úr granatepli. Mæli með að setja minna í krukkurnar/glösin ef að þið viljið minni skammta. OSTAKAKA Í KRUKKU MEÐ HAFRAMULNINGI, KÓKOS- OG MÖNDLUSMJÖRI Fyrir 4 1 dós Philadelphia rjómaostur 2 dl rjómi 4 msk kókos og möndlusmjör með döðlum frá Rapunzel S


CURLYWURLY BOLLAKÖKUR
Þessar gómsætu karamellu Curlywurly bollakökur eru bæði „chewy“ og bragðgóðar. Kökurnar eru svo ljúffengar að það þarf varla krem og pottþétt gott að setja deigið í kökuform eða bökunarform og baka. Uppskriftin gerir 12 bollakökur 2,5 dl hveiti 2 dl púðursykur 1 tsk lyftiduft ½ tsk salt ½ tsk matarsódi 90 g smjör, brætt 2 egg½ dl condensed milk 1 msk ólífuolía 1 tsk vanilludropar 3 Curlywurly Krem 100 g Philadelphia rjómaostur 100 g smjör við stofuhita 5 dl flórsykur 3 stk Cu


VEGAN JÓLAÍS
Bragðgóður og jólalegur ís sem inniheldur Oatly vanillusósu, Oatly rjóma og hrísgrjónasúkkulaði með heslihnetufyllingu frá Rapunzel. Vá hvað þessi blanda er góð og hátíðleg. Ég toppa svo ísinn með súkkulaðisósu úr dökku súkkulaðiáleggi frá Rapunzel ásamt ferskum berjum sem gerir hann extra hátíðlegan og fallegan. 2 fernur Oatly vanillusósa 1 ferna Oatly rjómi 2 plötur hrísgrjónasúkkulaði með heslihnetufyllingui frá Rapunzel ⅔ krukka dökkt súkkulaðiálegg frá Rapunzel Fersk ber


EINFÖLD AFMÆLISKAKA MEÐ KARAMELLUKREMI
Ég gerði þessa dásamlegu súkkulaðköku með karamellukremi í 2 ára afmælinu hennar Eddu. Ég notaði súkkulaðikökumixið frá Kötlu sem mér finnst svo gott og gerði mjög gott krem. Ég elska kökur en að skreyta þær hefur ekki verið mín deild. En þessi kaka heppnaðist mjög vel og það besta við hana er að hún er svo fljótleg. Ég bakaði kökubotnana daginn áður en útbjó kremið samdægurs. Skreytti hana með kreminu og rosegold kökuskrauti. Einföld og svakalega ljúffeng! Kaka (bökunarleið


SÚKKULAÐI GRANÓLA BITAR
Fljótlegir og gómsætir granóla bitar sem innihalda aðeins fjögur hráefni en þeir innihalda haframjöl, hlynsíróp, súkkulaði og súkkulaðismyrju. Ég notað Vegan súkkulaði frá So Vegan So Fine sem er mjög gott. 2 dl súkkulaðiálegg með heslinhnetum frá So Vegan So Fine eða annað 1 dl hlynsíróp frá Rapunzel 6 dl haframjöl 80 g 70% súkkulaði frá Rapunzel Aðferð Hitið ofninn í 190°C með blæstri. Blandið saman súkkulaðiálegginu og sírópinu í skál. Fínmalið 2 dl af haframjölinu í bland


HOLLT DÖÐLUNAMMI „VIRAL DATE BARK“
Þetta döðlunammi fór algjörlega „viral“ á samfélagsmiðlunum. Ég varð að prófa að útbúa þetta sjálf og notaði ég aðeins fjögur innihaldsefni: Whole Earth hnetusmjörið, ferskar döðlur, 70% súkkulaði og saltaðar pistasíur. Pistasíurnar setja punktinn yfir-ið. Svo einfalt, gott og geggjað að eiga til í frystinum ef mann langar í eitthvað sætt! Ef þið hafið ekki smakkað þá mæli ég með. 30 ferskar döðlur Whole Earth hnetusmjör í túpu eftir smekk 100 g 70% súkkulaði ½ dl pistasíur


LJÚFFENG OSTAKAKA Í GLÖSUM
Ostakaka með TUC kexi og Milka toffee creme súkkulaði. Þessi ostakaka er brjálæðislega ljúffeng og auðveld í undirbúningi. Fullkominn eftirréttur sem gott er að gera með smá fyrirvara, geyma í ísskápnum og skella ferskum berjum ofan á þegar það á bera þetta fram. Fyrir 4-6 1 pakkning Tuc kex 100 g brætt smjör 2 ½ dl rjómi 200 g Philadelphia rjómaostur 2 msk flórsykur 100 g Milka toffee creme 2 msk rjómi Fersk ber Aðferð: Bræðið Milka toffee creme í potti ásamt 2 msk rjóma og


OREO ÍS
Nei halló hvað þessi ís er góður! Og hann inniheldur aðeins fimm hráefni. Ég notaði tilbúinn Oreo mulning sem er mjög þægilegt en auðvitað hægt að mylja Oreo sjálfur og nota það. Uppskriftin er afar einföld og fljótleg! Ég bar ísinn fram með heitri Dumle karamellusósu og ferskum berjum en það þarf ekki, ísinn er svo góður. Mæli mikið með! 4 eggjarauður 60 g sykur 5 dl rjómi 2 tsk vanilludropar ½ – ⅓ poki Oreo crumble (200-300 g) Dumle sósa 10 Dumle karamellur ½ dl rjómi Aðfer


LITLAR TOBLERONE PAVLOVUR
Það besta við þessar pavlovu er Toblerone súkkulaði! Ég dreifi því yfir pavlovurnar áður en ég baka þær. Svo gott! Pavlovurnar eru svo toppaðar með rjóma, brómberjum, bláberjum, ástríðu ávexti og söxuðu Toblerone. Mæli með að bera þetta fram sem eftirrétt og það mun pottþétt slá í gegn! Uppskrift að 10 litlum pavlovum 4 eggjahvítur 200 g sykur 1 tsk borðedik 1¼-1½ Toblerone 3-4 dl þeyttur rjómi Brómber eftir smekk Bláber eftir smekk 1-2 ástríðu ávöxtur Aðferð Þeytið eggjahví
bottom of page